Fréttir: febrúar 2026

5.2.2026 : Erasmus+ fyrir öll: Vefstofa um inngildingarstyrki á Jafnréttisdögum háskólanna

Landskrifstofa Erasmus+ býður öll áhugasöm velkomin á sérstaka vefstofu um inngildingarstyrki í háskólahluta þann 10. febrúar.

Lesa meira

3.2.2026 : Tvö vefnámskeið um námsdvöl erlendis og hlutverk náms- og starfsráðgjafa

Námskeiðin eru á vegum Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar – Euroguidance .
Fjallað verður um námsdvöl erlendis (learning mobility) og hlutverk náms- og starfsráðgjafa. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í þessu viðfangsefni eða vilt dýpka þekkingu þína og starfshætti, eru vefnámskeiðin ætluð til að styðja þig í starfi með nemendum.

Lesa meira

3.2.2026 : Við erum að leita að matsfólki fyrir Erasmus+

Rannís óskar eftir hæfu matsfólki til að meta umsóknir og skýrslur í menntahluta Erasmus+. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.

Lesa meira

3.2.2026 : Öll velkomin á vinnustofu um umsóknarskrif samstarfsverkefna

Næsti umsóknarfrestur samstarfsverkefna er 5. mars 2026.  

Við bjóðum öll velkomin á "Application Lab", vinnusmiðju, þar sem hægt er að spjalla við starfsfólk Landskrifstofu og fá ráðgjöf varðandi umsóknarskrif.

Lesa meira
Arsfundur-Erasmus-2026-faerni-til-framtidar

2.2.2026 : Velkomin á ársfund Erasmus+ 2026

Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi halda ársfund Erasmus+ 2026 þann 5. mars kl. 12:15-16:00 og ber hann yfirskriftina Færni til framtíðar. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Tækniskólans í Sjómannaskólahúsinu við Háteigsveg. 

Lesa meira









Þetta vefsvæði byggir á Eplica