Öll velkomin á vinnustofu um umsóknarskrif samstarfsverkefna

3.2.2026

Næsti umsóknarfrestur samstarfsverkefna er 5. mars 2026.  

Við bjóðum öll velkomin á "Application Lab", vinnusmiðju, þar sem hægt er að spjalla við starfsfólk Landskrifstofu og fá ráðgjöf varðandi umsóknarskrif.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

  • Hvenær: 11. febrúar, kl. 14:00 - 16:00

  • Hvar: Rannís, Borgartúni 30, 3. hæð.

  • Fyrir: umsækjendur Erasmus+ samstarfsverkefna

SKRÁNING

Samstarfsverkefnum er sérstaklega ætlað að styðja við áherslur Evrópusambandsins á sviði menntunar og æskulýðsstarfs.

  • Að auka gæði starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu og deila nýjungum með öðrum, þvert á fag- og starfsgreinar

  • Að styrkja stofnanir í að vinna þvert á landamæri, skólastig og faggreinar

  • Að mæta sameiginlegum þörfum og forgangsatriðum á sviði menntunar, þjálfunar, æskulýðs- og íþróttastarfs

  • Að stuðla að framförum (hjá einstaklingum, stofnunum eða innan einstakra geira) sem leiða til umbóta og nýrra aðferða

Almenn markmið Erasmus+ (horizontal priorities) snúa að aðgengi allra að áætluninni, umhverfisvænt alþjóðastarf, aukna stafræna þróun og færni sem og sameiginleg gildi og borgaralega þátttöku.

Nánari upplýsingar má finna í Erasmus+ handbókinni.

Fyrirspurnir um vinnustofuna og samstarfsverkefni sendist á erasmusplus@rannis.is.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica