Um Erasmus+ á Íslandi

Erasmus+ er styrkjaáætlun ESB fyrir mennta-, æskulýðs- og íþróttamál 2021 - 2027

Erasmus+ mun veita 26 milljarða evra í styrki á þessu sjö ára tímabili til fjölbreyttra verkefna.

Áætlunin styður meðal annars skiptinám, sjálfboðaliðastarf, ungmennaskipti, símenntun starfsfólks, notkun upplýsingatækni í kennslu, tungumálanám, viðurkenningu á færni, fjölbreytt samstarfsverkefni, nýsköpun í kennslufræðum, stefnumótun á öllum stigum, átök gegn leikjasvindli og fíkniefnanotkun íþróttum og margt fleira.

Yfir 10 milljónir Evrópubúa hafa notið stuðnings frá Erasmus áætluninni frá því hún hóf göngu sína árið 1987. Ísland tekur þátt í samstarfinu vegna bókunar 31 við EES-samninginn, en hún fjallar um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins og gerir Íslendingum kleift að taka þátt í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins á sviði mennta-, menningar- og vísindamála. Frá því að Íslendingar tóku fyrst þátt árið 1991 er fjöldi þeirra nú rúmlega 30 þúsund. 

Styrkir úr Erasmus+ til mennta- og æskulýðsmála skiptast í þrjá flokka:

Flokkur 1: Nám og þjálfun

Stofnanir og samtök sem sinna menntun og æskulýðsstarfi geta sótt um ferða-, uppihalds- og námsstyrki fyrir ungt fólk, nemendur og starfsfólk. 

Flokkur 2: Samstarfsverkefni

Samstarfsverkefni veita stofnunum og samtökum tækifæri til að skiptast á reynslu og kynnast nýjum aðferðum, hvort sem samstarfið er smátt í sniðum eða á stærri skala. 

Flokkur 3: Stefnumótun

Verkefni sem í flestum tilfellum tengjast samvinnu stjórnvalda um stefnumótun í menntun og æskulýðsmálum innan Evrópu. 

Nánari upplýsingar um uppbyggingu Erasmus+ eru í Handbók Erasmus+.

Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi

Rannís  hýsir landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi. Hluti styrkja Erasmus+ á sviði mennta- æskulýðs og íþróttamála eru í umsjá Framkvæmdaskrifstofu mennta- og menningarmála í Brussel.

Starfsfólk landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi 

Helstu verkefni landskrifstofunnar:

  • Reglulegt samstarf við íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um framkvæmd áætlunarinnar á Íslandi
  • Kynning á áætluninni, markmiðum hennar, forgangsatriðum, umsóknarfrestum og miðlun upplýsinga til væntanlegra umsækjenda
  • Vinna með matsmönnum og matsnefndum við mat á styrkumsóknum og frágangi á rökstuðningi fyrir styrkveitingum
  • Formleg ákvörðun um úthlutun
  • Gerð samninga um verkefni sem hljóta styrki, greiðsla styrkja og eftirlit með framkvæmd verkefna
  • Uppgjör á reglulegum samningum við framkvæmdastjórn ESB vegna þeirra styrkja sem íslenska landskrifstofan úthlutar
  • Endurskoðun og úttekt á verkefnum í samráði við framkvæmdastjórn ESB
  • Aðstoð við mat stjórnvalda og framkvæmdastjórnar ESB á menntamálum







Þetta vefsvæði byggir á Eplica