Rannís óskar eftir hæfu matsfólki til að meta umsóknir og skýrslur í menntahluta Erasmus+. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.
Matsvinnan tengist umsóknarfrestum Erasmus+ í febrúar og mars og er einnig tilfallandi samkvæmt samkomulagi. Greitt er fyrir hvert mat eftir ákveðnum taxta.
Við leitum að einstaklingum sem hafa þekkingu á íslenska menntakerfinu á einu eða fleiri eftirfarandi sviðum:
Reynsla og/eða skilningur á fjölþjóðlegu samstarfi, framkvæmd og skipulagi verkefna og stefnumiðum Evrópusambandsins á sviði menntunar er nauðsynleg.
Íslenskukunnátta og mjög góð enskukunnátta er skilyrði.
Matsfólk metur bæði umsóknir og skýrslur tveggja verkefnaflokka: Náms- og þjálfunarverkefni og samstarfsverkefni.
Áhugasöm eru beðin um að senda umsókn og ferilskrá í tölvupósti ekki síðar en 16. febrúar 2026 á: erasmusplus@rannis.is
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.

feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.