Þann 28. janúar 2026 var upphafsfundur samstarfsverkefna haldinn fyrir þau verkefni sem hlutu styrk í seinni úthlutun Erasmus+ árið 2025 á sviði æskulýðsmála og fullorðinsfræðslu.
Jón Svanur Jóhannsson verkefnastjóri samstarfsverkefna
í fullorðinsfræðslu, María Kristín Gylfadóttir frá
NORTH Consulting ehf. styrkþegi
og Júlíana Grigorova Tzankova sérfræðingur hjá Rannís
Átta verkefni hlutu styrk í æskulýðshlutanum, þar af sex smærri samstarfsverkefni (KA210) og tvö samstarfsverkefni (KA220). Í fullorðinsfræðslu hlutu tvö verkefni styrk, bæði stærri samstafsverkefni (KA220).
Markmið fundarins var að fara yfir helstu atriði sem snúa að framkvæmd verkefna, miðlun niðurstaðna og mati á árangri. Þá gafst styrkþegum einnig kostur á að kynnast og efla tengsl sín á milli.
Í fullorðinsfræðslu hlutu tvö samstarfsverkefni styrk. Annað þeirra miðar að því að styðja við virka þátttöku eldra fólks og efla heilsu og lífsgæði á efri árum. Hitt verkefnið beinist að þróun matsaðferða fyrir þverfærni fullorðinsfræðara og styrkingu fagmennsku í fullorðinsfræðslu.
Samstarfsverkefni Erasmus+ stuðla að þróun nýrra aðferða og lausna í menntun og æskulýðsstarfi, efla alþjóðlegt samstarf og miðlun þekkingar.
Verkefnin sem hlutu styrk taka á fjölbreyttum viðfangsefnum innan æskulýðsstarfs og endurspegla forgangsröðun Erasmus+ á sviði inngildingar, sjálfbærni, stafrænnar þróunar og þátttöku ungs fólks. Meðal helstu áherslna eru:
Aukið aðgengi og þátttaka ungs fólks með fötlun í rafíþróttum
Efling nýsköpunar og skapandi þátttöku ungs fólks
Samstarf og fræðsla um menningararf og sameiginleg gildi
Græn matvælaframleiðsla
Styrking stöðu stúlkna í rafíþróttum
Tækifæri og virkni ungs fólks í dreifbýli
Færniþróun, sjálfstraust og lýðræðisleg þátttaka ungs fólks
Landsskrifstofa Erasmus+ óskar styrkþegum innilega til hamingju með verkefnin.
Myndir frá viðburðinum:

Styrkþegar í æskulýðshluta, séð frá vinstri, aftari röð : Jóhanna Ingvarsdóttir (Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur), Katrín Gunnarsdóttir (Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur), Kjartan Þór Ingason (ÖBÍ) , Hildigunnur M. Kristins (Markaðsstofa Reykjaness/Visit Reykjanes), Tanja Teresa Leifsdóttir (Rannís) og Júlíana Grigorova Tzankova (Rannís). Fremri röð frá vinstri: Jamie Lee (Fine Foods Islandica) og Jóhann Ragnarsson (Rafíþróttasamband Íslands).

Tanja Teresa Leifsdóttir verkefnastjóri samstafsverkefna í æskulýðshluta
Jamie Lee frá Fine Foods Islandica sem hlaut styrk í æskulýðshluta


Jón Svanur Jóhannsson, verkefnastjóri samstarfsverkefna í fullorðinsfræðslu hjá Landskrifstofu
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.