Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi halda ársfund Erasmus+ 2026 þann 5. mars kl. 12:15-16:00 og ber hann yfirskriftina Færni til framtíðar. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Tækniskólans í Sjómannaskólahúsinu við Háteigsveg.
Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB ásamt tengdum stoðverkefnum, sem Rannís hýsir hér á landi, bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til að byggja upp fagþekkingu, þróa nýjar lausnir í námi og kennslu og verkfæri til að efla, meta og miðla betur upplýsingum um færni innan evrópska menntasvæðisins.
Ársfundur Erasmus+ 2026 hefur það að markmiði að stuðla að umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og setja færniþróun fyrir framtíðina í forgrunn með því að kynna helstu tækifæri og árangur af Evrópusamvinnu.
Gert er ráð fyrir þátttakendum á fundinn sem starfa á öllum sviðum menntunar, æskulýðsmála og íþrótta. Viðburðurinn hefst með hádegisverði kl 12:15 og síðan tekur formleg dagskrá við kl. 13:00 í hátíðarsal Sjómannaskólans.
Það er okkar von að viðburðurinn leggi sitt af mörkum til að auka þekkingu á evrópskum tækifærum, miðli niðurstöðum árangursríkra verkefna og stuðli að vönduðum umsóknum um framtíðarverkefni sem geta haft mikil, víðtæk og varanleg áhrif á færniþróun hérlendis.
*Birt með fyrirvara um breytingar
Hluti viðburðar verður í streymi og birtist hlekkur á streymi hér fyrir neðan þegar nær dregur
Facebook viðburðurjan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.