Þessi tengslaráðstefna er ætluð samtökum og stofnunum sem starfa með ungu fólki á Grænlandi, á Íslandi eða í Danmörku. Viðburðurinn gefur þátttakendum tækifæri til að kynnast öðrum fagaðilum, byggja upp tengslanet, deila hugmyndum, fá innblástur úr starfi hvers annars og finna mögulega samstarfsaðila í alþjóðleg verkefni.
Viðburðurinn er skipulagður af landskrifstofum Erasmus+ og European Solidarity Corps á Íslandi og í Danmörku.
Viðburðurinn er fyrir þig ef:
Á viðburðinum munt þú:
Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu af Erasmus+ eða European Solidarity Corps til að sækja um þátttöku. Gert er ráð fyrir þátttakendum með mismikla reynslu. Þátttakendur með litla eða enga reynslu skulu taka þátt í rafrænum upplýsingafundi fyrir viðburðinn. Fundirnir tryggja að allir þátttakendur hafi grunnþekkingu á áætlununum. Þátttaka í einum slíkum upplýsingafundi er skilyrði fyrir þátttöku í viðburðinum í Nuuk.
Öryggi og aðgengi
Markmið okkar er að skapa öruggt rými fyrir alla þátttakendur. Öll eiga að njóta virðingar og jafnræðis og mismunun eða áreitni verður ekki liðin.
Ef þú þarft sérstakan stuðning til að geta tekið þátt, til dæmis hjólastólaaðgengi eða fylgdarmanneskju, munum við gera okkar besta til að koma til móts við þær þarfir.
Hagnýtar upplýsingar
Viðburðurinn fer fram á Hótel Hans Egede í Nuuk á Grænlandi dagana 4.–8. maí 2026. Komudagur er 4. maí. Heildardagskrá fer fram dagana 5.–7. maí og brottför er 8. maí. Vænst er til þess að allir taki þátt í allri dagskránni.
Gisting, máltíðir (frá kvöldverði 4. maí til morgunverðar 8. maí) og ferðakostnaður verða greidd af landskrifstofum Erasmus+ og European Solidarity Corps.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Umsókn
Umsóknarfrestur er 8. mars 2026. Hægt er að sækja um þátttöku með því að smella hér: Tengslamyndurnarráðstefna á Grænlandi – Fill in form
Gert er ráð fyrir um 10 þátttakendum frá hverju landi. Ef umsóknir eru fleiri en laus pláss áskilja landskrifstofurnar á Íslandi og í Danmörku sér rétt til að forgangsraða umsóknum. Allir umsækjendur fá upplýsingar um niðurstöðu eigi síðar en 12. mars 2026.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.