Erasmus+ fyrir öll: Vefstofa um inngildingarstyrki á Jafnréttisdögum háskólanna

5.2.2026

Landskrifstofa Erasmus+ býður öll áhugasöm velkomin á sérstaka vefstofu um inngildingarstyrki í háskólahluta þann 10. febrúar.

Harpa Sif Arnarsdóttir, sérfræðingur í háskólateymi, og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, inngildingarfulltrúi landskrifstofu Erasmus+, munu kynna hvernig inngildingarstyrkir Erasmus+ virka, hver geta nýtt þá og segja frá reynslu fólks sem hefur fengið slíkan stuðning.

Erasmus+ leggur ríka áherslu á inngildingu og jafnt aðgengi að alþjóðlegum tækifærum. Markmiðið er að sem flest hafi raunhæfan möguleika á þátttöku, óháð aðstæðum. Með sérstökum inngildingarstyrkjum er m.a. stutt við þátttakendur sem standa frammi fyrir viðbótarkostnaði vegna skiptináms eða þjálfunar erlendis, til dæmis vegna fötlunar, andlegra eða líkamlegra veikinda, félagslegra aðstæðna eða ábyrgðar á börnum.

Bæði nemendur og starfsfólk háskóla eru hvött til að mæta og kynna sér betur hvernig Erasmus+ styður við inngildingu og jafnt aðgengi að tækifærum.

Viðburðurinn er haldin í tengslum við Jafnréttisdaga háskólanna og fer fram á Teams.

Nánari upplýsingar:

Facebook-síða viðburðarins: https://www.facebook.com/events/1547805406503209

Upplýsingar um inngildingu í Erasmus+ á háskólastigi: Inngildingarstyrkir fyrir stúdenta og starfsfólk háskóla | Inngilding á háskólastigi | Erasmus+









Þetta vefsvæði byggir á Eplica