Tvö vefnámskeið um námsdvöl erlendis og hlutverk náms- og starfsráðgjafa

3.2.2026

Námskeiðin eru á vegum Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar – Euroguidance .
Fjallað verður um námsdvöl erlendis (learning mobility) og hlutverk náms- og starfsráðgjafa. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í þessu viðfangsefni eða vilt dýpka þekkingu þína og starfshætti, eru vefnámskeiðin ætluð til að styðja þig í starfi með nemendum.

Markhópur: Náms- og starfsráðgjafar sem starfa í framhaldsskólum (bæði bók- og verknámi).
Fyrirkomulag: Á netinu, með gagnvirkum þáttum eins og spjalli og skoðanakönnunum.
Skráning: Hægt er að skrá sig á bæði vefnámskeiðin eða aðeins annað þeirra:

Skráning á vefnámskeið

Vefnámskeið A – Áhrif ráðgjafar á námsdvöl erlendis

Miðvikudagur, 25. febrúar 2026 kl. 13:00–14:30 (14:00–15:30 CET)

Á þessu vefnámskeiði verður farið yfir grunnatriði um hvers vegna námsdvöl erlendis skiptir máli fyrir persónulegan þroska nemenda og framtíðartækifæri þeirra. Þátttakendur fá innsýn í helsta ávinning, nýjustu rannsóknir og hagnýtar leiðir sem náms- og starfsráðgjafar geta nýtt til að styðja nemendur bæði í undirbúningi, á meðan á námsdvöl stendur og eftir heimkomu.

Vefnámskeið B – Ráðgjafarúrræði fyrir inngildandi og sjálfbæra námsdvöl

Miðvikudagur, 18. mars 2026 kl. 13:00–14:30 (14:00–15:30 CET)

Þetta vefnámskeið býður upp á hagnýtar aðferðir og leiðir í ráðgjöf tengdri námsdvöl erlendis. Fjallað verður um inngildingu og stuðning við hópa sem hafa færri tækifæri, þróun hæfni sem gengur þvert á menningarheimar og sjálfbærnimarkmið í námsdvöl erlendis. Einnig verða kynnt verkfæri sem gera færni sýnilega og skoðuð verða alþjóðleg tækifæri fyrir náms- og starfsráðgjafa.

Athugið að námskeiðin fara fram á ensku. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica