Nýr bæklingur um forgangsatriði Erasmus+ og European Solidarity Corps

2.6.2025

SALTO miðstöðvarnar styðja við markmið Evrópuáætlana á sviði æskulýðs- og menntamála og styrkja faglegt starf og nýsköpun. Nú hafa þær gefið út hagnýtar leiðbeiningar til að hjálpa umsækjendum og verkefnisstjórum í Erasmus+ og European Solidarity Corps að vinna með forgangsatriði áætlananna. 

Forgangsatriði þvert á markhópa

Það eru fjögur forgangsatriði í Erasmus+ og í European Solidarity Corps (ESC): Inngilding, grænar áherslur, stafrænar áherslur og virk samfélagsþátttaka. Þær hagnýtu leiðbeiningar sem þú finnur í bæklingnum hjálpa þér að taka mið af forgangsatriðunum í Erasmus+ og ESC verkefninu þínu. 

En hvað þýða forgangsatriðin í raun og veru?

Í bæklingnum er leitast við að útskýra þessi fjögur forgangsatriði og hvernig hægt er að vinna með þau í verkefnum Erasmus+ og European Solidarity Corps, óháð því á hvaða sviði þú starfar. Hafa ber í huga að forgangsatriðin koma ekki endilega fyrir ein og sér heldur skarast þau gjarnan, til dæmis þegar fjallað er um lýðræðislega þátttöku jaðarsettra hópa og þegar unnið er með stafræna tækni til að gera verkefni sjálfbærari. Það er mikilvægt að þekkja tengslin milli forgangsatriðanna og að vinna markvisst með þau, því ef forgangsatriðin eru fléttuð saman á markvissan hátt geta þau orðið heildstæðari og vænlegri til árangurs. Hér á síðu Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi má finna nánari upplýsingar fyrir umsækjendur og verkefnisstjóra um forgangsatriðin fjögur: 

Hvert verkefni er einstakt og byggir á þörfum þátttakenda og stofnana sem koma að því. Það hvernig þessi forgangsatriði eru innleidd verður því ólíkt milli verkefna.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica