Mikil tímamót eru í Evrópusamstarfi á sviði mennta- og æskulýðsmála, en nýrri kynslóð Erasmus+ áætlunarinnar hefur verið ýtt úr vör eftir nokkuð langan aðdraganda. Umsækjendur hér á landi geta nú farið að kynna sér hvað ber hæst í Erasmus+ á tímabilinu 2021-2027 og auglýst hefur verið eftir umsóknum fyrir árið 2021. Áætlunin verður kynnt hér á landi á opnunarhátíð sem verður streymt frá Borgarleikhúsinu 15. apríl kl. 14:00-16:00.
„Sú staðreynd að Erasmus+ fjármagnið hefur næstum tvöfaldast endurspeglar mikilvægi náms á öllum stigum og æskulýðsmála í Evrópu. Erasmus+ er einstök áætlun hvað varðar stærð, umfang og orðspor um allan heim.“ (Mariya Gabriel, framkvæmdastjóri nýsköpunar, menningar, menntunar og æskulýðsmála hjá Framkvæmdastjórn ESB.)
Þau sem þekkja til Erasmus+ tímabilsins sem er nýlokið munu finna ýmis kunnugleg stef í nýju áætluninni. Megináhersla er áfram lögð á tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til að stunda nám og þjálfun í öðru landi. Sú reynsla hefur auðgað líf og opnað huga meira en 10 milljóna Evrópubúa allt frá árinu 1987 – en þetta eru einmitt einkunnarorð Erasmus+. Samstarfsverkefnin verða einnig á sínum stað og munu halda áfram að gera samtökum og stofnunum kleift að læra hvert af öðru þvert á landamæri.
Auk þess að veita tvöfalt meira fjármagni til styrkja en á fyrra tímabili – eða um 26 milljörðum evra – má greina nýjar áherslur í öllum verkefnaflokkum. Þannig er henni ætlað að vera enn aðgengilegri en áður og styðja sérstaklega við inngildingu á sviðum mennta- og æskulýðsmála. Sjónum verður beint að hlýnun jarðar með því að styðja verkefni sem hvetja til vistvænnar nálgunar í alþjóðastarfi. Áætlunin dregur lærdóm af heimsfaraldri Covid-19 og styrkir samtök og stofnanir í að nýta stafrænar aðferðir og bjóða upp á nám sem eflir færni til framtíðar. Hún hjálpar einnig fólki við að taka virkan þátt í samfélaginu og bætir lýðræðisfærni þess.
Starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi fagnar þessum þáttaskilum og hvetur þau sem vilja byggja brýr milli landa í æskulýðsstarfi eða hvers kyns námi að skoða vel nýjar upplýsingar um tækifærin sem í boði eru. Við hlökkum til að heyra af spennandi verkefnahugmyndum og taka á móti fjölbreyttum umsóknum frá ykkur.
Ath! Verið er að uppfæra heimasíðuna www.erasmusplus.is og verða umsóknareyðublöð aðgengileg fljótlega.
Nánari upplýsingar
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.