Hærri fjárhæðir og aukinn sveigjanleiki – ESC auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2024

30.11.2023

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýsir umsóknarfresti fyrir árið 2024 í sjálfboðaliðaáætluninni European Solidarity Corps (ESC). ESC áætlunin styður ungt fólk sem vill fara erlendis í sjálfboðastarf eða framkvæma samfélagsverkefni í eigin nærumhverfi.

ESC gerir samtökum, fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi kleift að fá til sín sjálfboðaliða á aldrinum 18-30 ára í tvær vikur til 12 mánuði til að sinna verkefnum sem samræmast áherslum áætlunarinnar. Því gefst einnig tækifæri á að fara erlendis í sjálfboðaliðastarf eða setja á fót samfélagsverkefni sem hafa jákvæð áhrif eigið nærumhverfi. Sjálfboðaliða- og samfélagsverkefnin þurfa að byggja á einhverjum af megináherslum áætlunarinnar sem eru inngilding, grænar lausnir, stafræn þróun og virk þátttaka.

Á komandi ári mun ESC áætlunin stækka og verða alls 145 milljónir evra. Á árinu verða rúmlega 780 þúsund evrur til úthlutunar fyrir verkefni sem fara fram á Íslandi, eða um 120 milljónir íslenskra króna. Helstu liðir áætlunarinnar hækka milli ára til að koma til móts við núverandi verðbólguástand ásamt því að sveigjanleiki áætlunarinnar er aukinn. Auðveldara verður fyrir samtök að skipuleggja volunteering teams verkefni þar sem lágmarksfjöldi teyma verða 5 einstaklingar ásamt því að aukinn sveigjanleiki er fyrir ungt fólk til að taka oftar þátt í sjálfboðaverkefnum.

Til þess að geta tekið á móti sjálfboðaliðum þurfa samtök og stofnanir að sækja um gæðavottun (e. Quality label), sem að staðfestir að umsækjandi hafi getu og burði til að framkvæma gæðaverkefni sem ríma við markmið og skilyrði áætlunarinnar.

Ungt fólk á aldrinum 18-30 ára sem er skráð í European Solidarity Corps Portal getur sótt um styrk til þess að taka þátt í bæði sjálfboðaliða- og samfélagsverkefnum.

Umsóknarfrestir fyrir árið 2024 verða 20. febrúar og 1. október. Auka umsóknarfrestur verður fyrir samfélagsverkefni 7. maí.

Starfsfólk Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi, sem er jafnframt Landskrifstofa fyrir European Solidarity Corps, hvetur umsækjendur hér á landi til að kynna sér vel þá styrkjamöguleika sem í boði eru. Þau sem hafa spurningar um umsóknarferlið eru eindregið hvött til að hringja eða skrifa tölvupóst til viðkomandi verkefnastjóra.Ennfremur eru umsækjendur hvattir til að taka þátt í hinum ýmsu kynningarviðburðum sem Landskrifstofan mun standa fyrir víða um land og á netinu á komandi vikum og mánuðum. Þeir verða nánar auglýstir hér á síðunni og í fréttabréfi okkar, sem við mælum með að allt áhugasamt fólk um Evrópusamstarf gerist áskrifendur að.  

Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á Erasmus+ og European Solidarity Corps torginu.

Nánar um ESC á síðu Landskrifstofunnar

Handbók ESC fyrir árið 2024









Þetta vefsvæði byggir á Eplica