Eurodesk fagnar 35 ára afmæli með sumargleði í Hinu Húsinu þann 5. júní og þér er boðið!

2.6.2025

Í afmælinu verður sumarstemning, farið í leiki, haldnir tónleikar og boðið upp á afmælisköku og veitingar.

Eurodesk , upplýsingaveita um alþjóðleg tækifæri fyrir ungt fólk, fagnar 35 ára afmæli í Hinu Húsinu fimmtudaginn 5. júní milli kl. 17:00 og 20:00. Í tilefni afmælisins er öllu ungu fólki boðið að koma og taka þátt í veislunni, kynna sér tækifæri í Erasmus+ og European Solidarity Corps og hljómsveitirnar Kyrsa og RAW munu spila nokkur lög.

Europass fagnar einnig 20 ára afmæli á árinu og tekur þátt í gleðinni með Eurodesk. Í tvo áratugi hefur Europass stutt ungt fólk og fagfólk við að skrá og kynna menntun, hæfni og reynslu – hvort sem er fyrir nám, störf eða verkefni erlendis sem og hérlendis. Á afmælinu geta gestir kynnt sér hvernig Europass getur hjálpað þeim að gera ferilskrá, halda utan um námsferil og undirbúa næstu skref.

Landskrifstofa Erasmus+ verður með kynningarbás og sjálfboðaliðar sem staddir eru á Íslandi munu deila sinni reynslu af sjálfboðaliðastörfum og veita þeim góð ráð sem hafa hug á því að láta gott af sér leiða í Evrópu. Samstarfsaðilar Eurodesk, Hitt Húsið og Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS), munu líka kynna starfsemi sína fyrir áhugasömum.

Svo verður að sjálfsögðu afmæliskaka og veitingar frá matarvagni í boði Eurodesk og Europass á Íslandi.

Afmælið er ætlað ungu fólki sem hefur áhuga á að fara í skiptinám, starfsnám, sjálfboðaliðastörf, ungmennaskipti eða önnur verkefni erlendis eða er forvitið um þau tækifæri sem bjóðast. Auk þess sem við hvetjum sérstaklega fyrrverandi þátttakendur í Erasmus+ og European Solidarity Corps, hvort sem þau hafa farið í skiptinám, starfsnám eða sjálfboðaliðastarf, til að mæta og deila reynslu sinni og njóta með okkur.

Taktu þátt í gleðinni með okkur 5. júní – við lofum góðum félagsskap, fróðleik og sumarstemningu!









Þetta vefsvæði byggir á Eplica