Umsóknarfrestur og upplýsingafundur um stefnumótandi verkefni í Erasmus+

19.1.2024

Umsóknarfrestur er nú opinn um KA3 verkefni sem styðja styrkhafa í að prófa sig áfram með ákveðna stefnumótun á sviði menntunar. Um er að ræða miðstýrðan verkefnaflokk, en það þýðir að umsjón með honum er ekki í höndum landskrifstofa heldur skrifstofunnar Education and Culture Executive Agency (EACEA), sem starfar í í Brussel. Sú skrifstofa stendur fyrir upplýsingafundi um frestinn og fer hann fram á netinu þann 6. febrúar. 

Fresturinn á við ólík stig menntunar og þjálfunar og hefur með eftirfarandi málaflokka að gera:

  • Stafræn menntun, þar sem áhersla er meðal annars lögð á kynjajafnvægi í upplýsingageiranum, stafræna velferð og upplýsingalæsi í grunn- og framhaldsskólum.

  • Starfsmenntun, þar sem áhersla er meðal annars lögð á konur í grænni tækni og stuðning við nemendur í starfsnámi

  • Fullorðinsfræðsla, þar sem áhersla er meðal annars lögð á að taka höndum saman við að efla færni á vinnumarkaði og að styðja við „Pact for skills

  • Leik-, grunn- og framhaldsskólar, þar sem áhersla er meðal annars lögð á mat á færni nemenda, nálgun skóla á andlega heilsu, uppbyggingu færni á sviði sjálfbærni og nám og þjálfun kennara.

  • Örnám, þar sem áhersla er meðal annars lögð á umgjörð örnáms og tengingu við stafrænu og grænu umskiptin.

  • Háskólar, þar sem áhersla er meðal annars lögð á stuðning stjórnvalda og sveitarfélaga við evrópsk háskólanet.

Misjafnt er milli málaflokka hver getur sótt um. Hverri umsókn er ætlað að takast á við einn málaflokk og eitt áhersluatriði undir þeim málaflokki. Ef umsækjendur vilja sækja um á fleiri sviðum þarf að senda inn fleiri en eina umsókn.

Upplýsingafundur EACEA hefst kl. 8:30 að íslenskum tíma þann 6. febrúar og tekur fyrir alla ofangreinda málaflokka. Nánari upplýsingar um fundinn má finna á síðu EACEA.

Umsóknarfrestur rennur út þann 4. júní 2024. Spurningar tengdar umsóknarferlinu má senda til EACEA-POLICY-SUPPORT@ec.europa.eu.

Auglýsing EACEA

Nánari upplýsingar í umsóknargátt EACEA









Þetta vefsvæði byggir á Eplica