Það styttist í Erasmus daga, 13. - 15. október 2022

22.9.2022

  • FACEBOOK-POST-1200X627

Það er aftur komið að þessum frábæra viðburði og nú í sjötta skiptið! 

Erasmus dagar eða #ErasmusDays er þriggja daga viðburður sem haldinn verður 13-15. október næstkomandi.

Á þessu tímabili verður Erasmus+ áætluninni fagnað og hundruð viðburða munu eiga sér stað um alla Evrópu. Þessir dagar eru frábært tækifæri
til þess að skipuleggja eða taka þátt í fjölbreyttum viðburðum, deila reynslu og læra meira um Erasmus+.

Við viljum hvetja: skóla, sveitarfélög, stofnanir, frístundamiðstöðvar og öll þau sem hafa tekið þátt í Erasmus+ að koma á framfæri verkefnunum sínum og ávinningnum af þeim meðan á Erasmus dögunum stendur.

Hvernig?
Til dæmis með kynningu á verkefni, sýnileika á samfélagsmiðlum, málþingi, sýningu eða einhverjum öðrum viðburði.

Hérna er hægt að skrá viðburði.

Nánari upplýsingar veitir kynningarstjóri Erasmus+ á Íslandi.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica