Dagana 21.-22. maí fór fram evrópsk tengslaráðstefna í Frankfurt, Þýskalandi, undir yfirskriftinni "Erasmus+ digitisation: why green, inclusive and participatory inputs are needed". Markmið ráðstefnunnar var að varpa ljósi á það hvernig stafræn þróun getur bæði eflt og grafið undan inngildingu, sjálfbærni og virkri samfélagslegri þátttöku, allt eftir því hvernig að þróuninni er staðið.
Samtals komu saman á ráðstefnunni um 100 manns víðsvegar frá Evrópu, þar á meðal fulltrúar háskóla, Landskrifstofa Erasmus+, nemenda og annarra hagaðila sem vinna að tengdri stefnumótun. Frá Íslandi sóttu ráðstefnuna Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðukona alþjóðasviðs Háskólans í Reykjavík, og Harpa Sif Arnarsdóttir, sérfræðingur í háskólateymi Landskrifstofu Erasmus+.
Ráðstefnan hófst með ávörpum frá Stephan Geifes, forstöðumanni þýsku Landskrifstofunnar (DAAD), og Noor Groenendijk, forstöðukonu hollensku Landskrifstofunnar (Nuffic), en ráðstefnan var samstarfsverkefni þessara tveggja landa. Michael Hörig, forstöðumaður svæðisskrifstofu DAAD í Brussel, flutti erindi þar sem hann kynnti Digital Education Action Plan og European Digital Education Hub, sem bæði gegna lykilhlutverki í stefnu Evrópusambandsins til að styðja við stafrænar áherslur í menntun.
Í pallborðsumræðum leiddi Angeliki Psychogyiou (Academic Cooperation Association - ACA) umræður milli fulltrúa SALTO-miðstöðvanna um samspil hinna fjögurra áhersluatriða Erasmus+: stafrænnar þróunar, sjálfbærni, inngildingar og virkrar þátttöku. Þá fluttu Andreas Deitmer og David Smida, fulltrúar frá BliZ miðstöðinni við Technical University Middle Hesse í Þýskalandi, áhugavert erindi um aðgengi í stafrænni háskólamenntun fyrir nemendur með sjón-, heyrnar- og hreyfihamlanir. Miðstöðin veitir nemendum fjölbreytta þjónustu til að tryggja inngildingu í námi og rannsóknum og fengu ráðstefnugestir að sjá hvernig nútímatækni getur til að mynda umbreytt vefsíðum í blindraletur í rauntíma.
Þátttakendur tóku þátt í þremur vinnustofum þar sem stafrænt aðgengi, sjálfbærni í Erasmus+ blönduðum hraðnámskeiðum og lýðræðisleg þátttaka í gegnum stafræna miðla voru rædd undir handleiðslu sérfræðinga. Meðal helstu niðurstaða vinnustofanna var eftirfarandi:
Þátttakendur voru sammála um að mikilvægt sé að halda
áhersluatriðunum fjórum áfram í næstu Erasmus+ áætlun og að enn séu mörg
verkefnin óunnin til að gera innleiðingu Erasmus+ enn betri.
SALTO-miðstöðvarnar (Digital,
Inclusion, Green,
Participation and information) eru
frábær leið til að fá hugmyndir, ráðleggingar og stuðning í þeirri vegferð.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.