Nýtt! Sérstök aðild að menntahluta nýrrar Erasmus áætlunar 2021-2027

30.9.2020

Umsóknarfrestur um Erasmus aðild er 29. október 2020. 

Ný Erasmus áætlun 2021-2027 tekur við af þeirri sem gilt hefur frá árinu 2014. Þar verður í boði nýr möguleiki fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, starfsmenntun og fullorðinsfræðslu þar sem skólar, stofnanir og fyrirtæki geta sótt um aðild að áætluninni.

Aðildin snýr eingöngu að náms- og þjálfunarverkefnum (KA1 mobility) og er leið til að einfalda alþjóðastarf skóla og annarra þátttakenda.

Með Erasmus aðild er staðfest að skólinn/stofnunin/fyrirtækið sem sækir um hafi unnið vandaða áætlun um fjölþjóðlegt samstarf og náms- og þjálfunarferðir (mobility activities) sem hluta af stefnumörkun til framtíðar.

Menntastofnanir sem hafa áhuga á fjölþjóðlegu samstarfi, geta sótt um Erasmus aðild fyrir sinn skóla/stofnun/fyrirtæki eða sótt um Erasmus aðild til þess að leiða samstarfsnet (consortium). Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu af Erasmus+ verkefnum (2014-2020) til að geta sótt um.

Stofnanir sem fá Erasmus aðild staðfesta, munu hafa einfaldari aðgang að styrkjamöguleikum náms- og þjálfunarverkefna í nýju menntaáætluninni 2021-2027.

Starfsmenntaskólar og -stofnanir sem þegar eru með Erasmus+ vottun geta fært vottun sína yfir í nýju áætlunina með því að sækja um Erasmus aðild. Einföld umsókn er opin fyrir vottaða aðila sem eiga möguleika á sérstakri viðurkenningu fyrir góða framkvæmd og gæði verkefna til þessa.

Lokað hefur verið fyrir umsóknir.

Aðildarumsókn:

Kynning.

*Athugið að umsóknareyðublöðin eru vefeyðublöð og það þarf EU Login aðgang til að nálgast þau. Umsóknareyðublöðin eru aðgengileg undir „Opportunities“ og síðan þarf að velja viðeigandi skólastig. Mikilvægt er að velja rétta umsóknarformið.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica