Nýr haust- umsóknarfrestur fyrir Erasmus+, náms og þjálfunarverkefni á sviði starfsmenntunar

20.8.2019

Auglýstur er opinn umsóknarfrestur fyrir Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefni á sviði starfsmenntunar. Um er að ræða viðbótarumsóknarfrest árið 2019 og rennur hann út 1.október 2019.

Starfsmenntaskólar, stofnanir og fyrirtæki sem starfa á sviði starfsmenntunar og taka á móti nemum í starfsþjálfun geta sótt um náms- og þjálfunarstyrki fyrir nemendur sína, nýútskrifaða nemendur og starfsfólk sem starfar á sviði starfsmenntunar- og þjálfunar.

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur og umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Erasmus+ í kaflanum um starfsmenntun

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica