Morgunverðarfundur fyrir náms- og starfsráðgjafa

1.11.2023

  • Morgunverdarfundur-22.11.2023

Euroguidance og Félag náms- og starfsráðgjafa bjóða til morgunverðarfundar fyrir náms- og starfsráðgjafa, miðvikudaginn 22. nóvember.

ATH: Ný Staðsetning - Hilton Reykjavík Nordica 2. hæð, Suðurlandsbraut 2. 105 Reykjavík.

Fundurinn hefst klukkan 10:00 en húsið opnar
kl. 9:30 og boðið verður upp á léttan morgunverð og kaffi. Dagskrá hefst kl. 10:00.

Fundurinn er skipulagður af Euroguidance í samstarfi við EPALE , EAAL og Félag náms- og starfsráðgjafa

Dagskrá: 

  • Kynning á Evrópska hæfniárinu (European Year of Skills) – Hulda Anna Arnljótsdóttir sérfræðingur hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
  • Raunfærnimat á háskólastigi á Íslandi – Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, segir frá stofnun íslensks tengslanets og þátttöku í evrópska verkefninu Interconnection/Innovation/INclusion.
  • Kynning á uppfærðum Evrópustöðlum um raunfærnimat – Fjóla María Lárusdóttir frá Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins.
  • Rafræn ferilbók í verknámi – Sigurjóna Jónsdóttir verkefnastjóri vinnustaðanáms hjá Tækniskóla Íslands deilir með okkur reynslu sinni.
  • Umræður.

Vinsamlegast skráið þátttöku sem fyrst með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Skrá þátttöku









Þetta vefsvæði byggir á Eplica