Erasmus+ áætlunin veitir styrkinn fyrir verkefninu stendur yfir til ársins 2028. Næstu umsóknarfrestir um Jean Monnet verkefni er 3. febrúar 2026.
Háskólinn á Bifröst hefur hlotið Jean Monnet Chair styrk fyrir verkefnið Iceland’s strategic role in Arctic and European security (ISARCEUR), sem fjallar um hlutverk og sérstöðu Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu. Verkefnið er leitt af dr. Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. Upphafsviðburður verkefnisins fór fram 15. janúar 2026 og var vel sóttur, meðal annars af Clöru Ganslandt, sendiherra ESB, og sendiherrum frá Svíþjóð, Danmörku, Grænlandi, Finnlandi, Frakklandi, Póllandi og Kanada.
Markmið verkefnisins er að efla fræðilegt og stefnumótandi samtal um aukið mikilvægi Íslands fyrir öryggi Evrópu og þróun norðurslóðastefnu í ljósi breytts öryggisumhverfis. Þetta verður meðal annars gert með nýjum námskeiðum, rannsóknum og vettvangi fyrir umræður um málaflokkinn milli fræðimanna, stofnanna, fjölmiðla og almennings. Verkefnið mun einnig styrkja alþjóðleg tengsl við háskóla, sendiráð, rannsóknarstofnanir og Jean Monnet samstarfsnet.
Jean Monnet verkefni styðja kennslu, rannsóknir og alþjóðlegt samstarf á sviði Evrópufræða. Verkefnin geta falist í stuttum námskeiðum um málefni Evrópusambandsins, sérhæfðum kennarastöðum, kennslumiðstöðvum sem sameina sérþekkingu á Evrópufræðum og öðrum fræðasviðum og alþjóðlegum samstarfsnetum sem tengja stofnanir og fræðimenn til að efla rannsóknir og stefnumótandi umræðu um evrópsk málefni.
Frá upphafi Jean Monnet árið 1990 hafa ellefu íslenskir háskólar hlotið styrki fyrir fjölbreytt verkefni sem tengjast Evrópufræðum. Árangurshlutfall íslenskra umsókna hefur verið hátt, um 50%. Upplýsingar um öll verkefni má nú finna í nýjum Jean Monnet gagnagrunni, sem opnaður var í lok árs 2025.
Næsti umsóknarfrestur um Jean Monnet verkefni er 3. febrúar 2026 kl. 17:00 (CET). Sótt er um til Framkvæmdaskrifstofu mennta- og menningarmála í Brussel í gegnum umsóknargátt Evrópusambandsins.
Nánari upplýsingar
Ítarlegar upplýsingar um Jean Monnet verkefni má finna í Erasmus+ handbókinni.
Fyrirspurnum um umsóknarferlið skal beina til EACEA-AJM@ec.europa.eu
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.