Landskrifstofa Erasmus+ auglýsir eftir umsóknum um viðurkenningu fyrir Evrópuverðlaunin fyrir nýsköpun í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA). Í ár er Evrópumerkið fyrir nýbreytni á sviði tungumálakennslu og -náms hluti af þeim verðlaunum. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins veitir árlega Evrópuverðlaunin fyrir nýsköpun í kennslu (European Innovative Teaching Award – EITA) sem viðurkenningu fyrir framúrskarandi og nýstárlegt starf á sviði kennslu og náms á mismunandi skólastigum. Verðlaunin eru liður í því að gera gæðum í menntun hátt undir höfði og stuðla að innleiðingu nýrra aðferða, með áherslu á alþjóðlegt samstarf og framtíðarhæfni nemenda.
Í ár verður sérstök nýjung innleidd í tengslum við verðlaunin: Evrópumerkið (European Language Label) verður hluti af EITA og þar með hlýtur eitt verkefni sem hefur skarað fram úr á sviði nýbreytni í tungumálanámi og tungumálakennslu þessi Evrópuverðlaun. Evrópumerkið hefur um árabil verið veitt fyrir verkefni sem ýta undir fjöltyngi, nýsköpun og gæði í tungumálakennslu og -námi – og með þessari sameiningu fá tungumálaverkefni nú aukinn sýnileika og áhrif.
Verðlaunin árið 2025 verða veitt í október (nákvæm dagsetning verður auglýst síðar) og í ár fylgir þeim einnig sérstakur fjárstyrkur að upphæð 500.000 krónur. Styrkurinn skal nýttur til kynningar og frekari þróunar á verkefnunum sem hljóta verðlaunin, þannig að þau geti orðið öðrum innblástur og haft áhrif til framtíðar.
Þema verðlaunanna fyrir árið 2025 er lýðræðismenntun - þátttaka í lýðræðislegu samfélagi, sameiginleg gildi og borgaraleg þátttaka (Citizenship education – participation in democratic life, common values and civic engagement). Í því felst að fólk sé stutt til virkrar og félagslegrar þátttöku í samfélaginu og þannig stuðlað að því að fjölbreyttar raddir móti umhverfið.
Kennarar og skólastofnanir á öllum skólastigum geta sótt um viðurkenninguna, óháð stærð skóla eða staðsetningu. Lögð er áhersla á verkefni sem:
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025. Við hvetjum öll sem hafa unnið að nýstárlegum verkefnum á sviði kennslu og skólaþróunar að nýta tækifærið til að fá viðurkenningu og styrk til að miðla og þróa áfram starf sitt.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.