Europass á Íslandi hvetur til þátttöku í Europass-keppninni 2025

3.12.2025

Hefur þú uppfært ferilskrána þína nýlega? Það gæti borgað sig í ár!

Europass á Íslandi stendur fyrir skemmtilegri og einfaldri keppni fyrir öll sem vilja efla ferilskrána sína. Þátttaka er einföld: farðu á europass.is, búðu til ferilskrá og sendu hana síðan á europass@rannis.is. Þá ertu komin í pottinn – og gætir unnið 100.000 kr. gjafabréf frá Icelandair.

Hvað er Europass?

Europass er ókeypis, örugg og notendavæn þjónusta frá Evrópusambandinu. Þar getur þú:

  • búið til faglega ferilskrá og kynningarbréf,

  • haldið utan um menntun, hæfni og starfsreynslu á einum stað,

  • safnað gögnum sem nýtast í umsóknum,

  • og æft þig fyrir atvinnuviðtöl með leiðbeiningum og verkfærum kerfisins.

Europass auðveldar þér að sækja um nám og störf. Markmiðið er að gera ferilskráargerð einfaldari, betri og aðgengilegri – sama hvert þú stefnir.

Taktu þátt í Europass-keppninni 2025
Sendu inn ferilskrána þína og taktu skref í átt að næsta tækifæri. Skráning er opin öllum og tekur aðeins nokkrar mínútur.

Farðu inn á europass.is og byrjaðu núna.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica