21 skref í átt að auknum tækifærum til náms og þjálfunar

22.8.2023

Þann 28. til 30. apríl sl. safnaði Framkvæmdastjórn ESB saman hópi almennra borgara í þriðja og síðasta skiptið til að ræða það hvernig auka mætti tækifæri fyrir nám og þjálfun utan landsteina fyrir allt fólk. Þá komu saman 150 borgarar frá 27 Evrópuríkjum sem voru valdir af handahófi til þess að ræða hverjar væru helstu hindranir fyrir hreyfanleika. Niðurstöður hópsins voru 21 tillaga sem hafa það markmið að auka hreyfanleika nemenda, kennara og starfsfólks til útlanda. 

Auk þess að hafa inngildingu fremst í huga, sýna tillögur hópsins fram á mikilvægi þess að hvetja til og auka vitund á frekari tækifærum fyrir almenna borgara sem hafa færri tækifæri til að ferðast í náms- og þjálfunarferðir. Tillögurnar sýna einnig fram á aukna möguleika og áskoranir sem fylgja stafrænum heimi og loftslagsbreytingum og hvernig hægt væri að draga úr umhverfisáhrifum ferðanna.

Tillögurnar 21 eru eftirfarandi:

  1. Að nota ensku sem helsta samskiptamálið fyrir nám og þjálfun í Evrópu
  2. Að tryggja aukinn stuðning við fjöltyngd verkefni
  3. Að tryggja frekari stuðning við áætlanir fyrir alla aldurshópa
  4. Að samþætta starfsmenntunargeirann þvert yfir álfuna enn frekar
  5. Að stuðla að tækifærum náms og þjálfunar fyrir fjölskyldur
  6. Að stuðla að stafrænum lausnum fyrir náms- og þjálfunartækifæri starfsfólks gegnum evrópskar áætlanir
  7. Að auka við tungumálakennslu með tækniþróun
  8. Að gera tungumálaáætlanir sýnilegri
  9. Að stuðla að fleiri Erasmus+ upplýsingastofum og upplýsingaveitum
  10. Að tryggja fjárhagsaðstoð fyrir þátttakendur
  11. Að skipa kynningarfulltrúa fyrir hvert ESB aðildarríki
  12. Að tryggja ráðgjöf á áfangastað
  13. Að hafa grænar áherslur í hávegum
  14. Að viðurkenna hlutverk kennara í hreyfanleika náms og þjálfunar
  15. Að tryggja fjárhagsaðstoð fyrir menntun starfsfólks
  16. Að veita upplýsingar um hreyfanleika starfsfólks
  17. Að skipuleggja markvissar upplýsingaherferðir fyrir nám og þjálfun
  18. Að setja á fót inngildingaraðgerðir
  19. Að berjast gegn fordómum með því að hvetja til jafnrar úthlutunar Erasmus+ styrkja
  20. Að meta hindranir í stjórnsýslunni sem vinnuveitendur og starfsfólk glíma við
  21. Að bæta upplýsingamiðlun fyrir Erasmus+

Tillögur borgaranna munu veita leiðtogaráðinu innblástur seinna á árinu þegar þær verða teknar fyrir.

Nánar um borgarafundinn

Listi fyrir tillögurnar









Þetta vefsvæði byggir á Eplica