Við erum að leita að matsmönnum!

29.1.2020

  • Matsmenn_erasmus

Rannís óskar eftir sérfræðingum til að meta umsóknir í menntahluta Erasmus+. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar

Óskað er eftir einstaklingum sem hafa:

  • Þekkingu á íslensku menntakerfi, sérstaklega á sviði starfsmenntunar, fullorðinsfræðslu og háskóla
  • Reynslu af fjölþjóðlegu samstarfi og verkefnastjórnun, ásamt skilningi á stefnumiðum Evrópusambandsins um menntun

Leitað er að matsmönnum til að meta umsóknir í tveimur verkefnaflokkum; Nám og þjálfun og Samstarfsverkefni.

Mjög góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. 

Starf matsmanna er verkefnatengt og tímabundið í tengslum við umsóknafresti Erasmus+ áætlunarinnar.

Áhugasamir eru beðnir um að senda inn umsókn og ferilskrá í tölvupósti eigi síðar en 12. febrúar á erasmusplus@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica