Umsóknarfrestur framlengdur frá 5. til 12. febrúar

31.1.2019

Vegna tæknilegra örðugleika hefur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tekið þá ákvörðun að framlengja umsóknarfrestinn sem áður var 5. febrúar um eina viku, eða til 12. febrúar 2019 (kl. 11 að morgni að íslenskum tíma eins og áður). 

Breytingin tekur til eftirfarandi verkefnaflokka: 

  • Flokkur 1: Nám og þjálfun  (KA101, KA102, KA103, KA104, KA105, KA107, KA108, KA116)
  • Flokkur 2: Æskulýðsstarf: Samstarfsverkefni (KA205)
  • Flokkur 3: Æskulýðsstarf: Fundir ungs fólks og ráðamanna (KA347)

Við biðjum umsækjendur að kynna sér vel þá fresti sem eru í gildi í Erasmus+ fyrir árið 2019.

Umsóknarkerfi Erasmus+ hefur verið hægt síðustu daga og við þökkum umsækjendum þolinmæðina. Verið er að vinna að úrbótum. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica