Erasmus+ umsóknarfrestir 2018

27.10.2017

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ áætluninni fyrir árið 2018.  

Í menntahluta Erasmus+ eru tveir umsóknarfrestir: 

Nám og þjálfun 1. febrúar
Samstarfsverkefni 21. mars

Í menntahluta er til úthlutunar um 6.7 milljónir evra (um 835 m.kr.).

Í æskulýðshluta Erasmus+ eru þrír umsóknarfrestir þar sem opið er í alla flokka í hverjum fresti: 15. febrúar, 26. apríl og 4. október. Athugið að aðeins er tekið á móti umsóknum um stór KA2 nýsköpunarverkefni í æskulýðsstarfi 26. apríl

Í æskulýðshluta er til úthlutunar um 1.6 milljón evra (um 200 m.kr.).

Þeir sem hafa hugsað sér að sækja um, sér í lagi þeir er ekki hafa sótt um áður, eru hvattir til að kynna sér vel Erasmus+ handbókina – en þar eru upplýsingar um skilyrði umsókna, hvernig umsókn er metin, upphæðir styrkja og umsóknarfresti. Einnig er hægt að setja sig í samband við starfsfólk Erasmus+ á Íslandi til að fá nánari upplýsingar um þau skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla til að geta sótt um styrki í Erasmus+.

Auglýsing um umsóknir í Erasmus+ fyrir árið 2018 í heild sinni.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Landsskrifstofu









Þetta vefsvæði byggir á Eplica