Tengslaráðstefna í Svíþjóð 1. - 2. febrúar 2018

8.1.2018

Landskrifstofa Erasmus+ menntaáætlunar ESB á Íslandi auglýsir eftir þremur þátttakendum á tengslaráðstefnuna Quality in Early Childhood Education and Care. Ráðstefnan verður haldin í Stokkhólmi, Svíþjóð, dagana 1.-2. febrúar nk.

QECEC er eitt helsta forgangsatriði samstarfsverkefna Erasmus+ áætlunarinnar. Markmið tengslaráðstefnunnar er að þátttakendur þrói og myndi hugmyndir að samstarfsverkefnum á skólastiginu. Um er að ræða tveggja daga ráðstefnu en að auki býðst þátttakendum möguleiki á að heimsækja sænskan leikskóla daginn áður en ráðstefnan sjálf hefst, þ.e. þann 31. janúar (þessi möguleiki er valkvæður).

Tengslaráðstefnan er ætluð aðilum á leikskólastigi. Leitað er að þátttakendum frá stofnunum sem stefna að KA2-samstarfi, s.s. leikskólastjórum eða –kennurum, skólaskrifstofum o.s.frv. sem eru tilbúnir til að stofna til nýrra Erasmus+ samstarfsverkefna tengd þema ráðstefnunnar.

Nánari upplýsingar

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um nafn, stofnun og stöðu innan skóla. Einnig upplýsingar um reynslu umsækjanda og verkefnishugmynd. Rík áhersla er lögð á myndun Erasmus+ verkefna og að þátttakendur fari sem fulltrúar sinna skóla/stofnana/samtaka og séu opnir fyrir að taka þátt í slíkri vinnu.

Við úthlutun styrkja er meginreglan að ekki fari nema einn frá hverjum skóla.

Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi veitir styrk fyrir ferðakostnaði. Þátttökugjald er greitt beint af landskrifstofu og inniheldur gistinætur á ráðstefnutíma (tvær nætur), fæði og annað uppihald.

Umsóknarfrestur er 11. janúar nk.

Sækja um þátttöku









Þetta vefsvæði byggir á Eplica