Ný skýrsla um árangur Íslands í alþjóðlegu samstarfi er komin út

4.7.2017

Evrópskt og norrænt samstarf er umfangsmikið í starfsemi Rannís sem er helsta þjónustustofnun á Íslandi á þessu sviði. Skýrslan geymir upplýsingar um árangur Íslands í þeim þremur áætlunum ESB sem Rannís hefur umsjón með.

Horizon 2020 (rannsóknir og nýsköpun) er stærsta áætlunin, en hún er um 76% af umfangi þess samstarfs sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins, Erasmus+ (menntun og æskulýðsstarf) er um 15% af umfangi og Creative Europe (kvikmyndir og menning) er um 1,5%. Heildarfjárveiting ESB til þessara áætlana á tímabilinu 2014-2020 er um 100 milljarðar evra.

Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB hefur verið umfangsmikil frá 1995. Árangur af sókn íslenskra aðila í evrópskar samkeppnisáætlanir hefur verið góður í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir og fjárhagslegt umfang þátttökunnar hefur aukist í takt við stækkandi áætlanir á hverju tímabili.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica