Málstofa í tilefni Evrópsku starfs­mennta­vikunnar 2017

17.11.2017

Þann 23. nóvember verður haldin spennandi málstofa um starfsmenntun í tilefni Evrópsku starfsmenntavikunnar 2017. Málstofan fer fram í IÐUNNI fræðslusetri, Vatnagörðum 20, Reykjavík frá kl. 15-17. 

Landskrifstofa Erasmus+ í samvinnu við Menntamálaráðuneytið og IÐAN fræðslusetur standa að kynningu á vinnustaðanámi og tækifærum sem bjóðast í Evrópu. Kynntir verða innlendir og erlendir sjóðir sem hægt er að sækja í til að efla vinnustaðanám, fulltrúar fyrirtækja lýsa reynslu sinna fyrirtækja af vinnustaðanámi og ný gæðaviðmið um vinnustaðanám verða kynnt (EQUAMOB). Nemar í vinnustaðanámi verða virkir þátttakendur í viðburðinum.

DAGSKRÁ

Setning málstofu
Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR

Evrópska starfsmenntavikan
Margrét Sverrisdóttir, Landskrifstofa Erasmus+ og EPALE

AÐ EFLA NÁM Á VINNUSTÖÐUM HÉRLENDIS OG Í EVRÓPU

Hverju hefur vinnustaðanámssjóður breytt í iðn- og starfsnámi
Jón Svanur Jóhannsson, Rannís

Reynslan af nemastarfi í evrópsku umhverfi
Gígja Magnúsdóttir, Icelandair hótel

Upplifun nema af vinnustaðanámi

Hlutverk fyrirtækisins (EQAMOB gæðamerki fyrir fyrirtæki)
Helen Gray og Inga Birna Antonsdóttir - IÐAN fræðslusetur

Kaffi og kaka

MIKILVÆGI ENDURMENNTUNAR/FULLORÐINSFRÆÐSLU

Símenntunarmiðstöðvar – námsleiðir í fullorðinsfræðslu
Guðrún Vala Elísdóttir, formaður Leiknar, samtaka fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi

Endurmenntun í iðnaði - námsframboð IÐUNNAR fræðsluseturs
Vettvangsferð innanhúss

SKRÁ ÞÁTTTÖKU HÉR!









Þetta vefsvæði byggir á Eplica