LungA hlýtur heiðurs­viður­kenningu Erasmus+

30 ára afmælishátíð áætlunarinnar haldin hátíðleg í Hörpu í dag

8.11.2017

  • Heiðursverðlaunahafar, Björt Sigfinnsdóttir, Aðalheiður Borgþórsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Ólafur Daði Eggertsson, ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, og Önnu R. Möller, starfsmanni Erasmus+ við verðlaunaafhendinguna.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veitti LungA – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, heiðursviðurkenningu við hátíðlega athöfn á afmælishátíð Erasmus+ sem fram fór í Hörpu í dag. Björt Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri LungA, og Aðalheiður Borgþórsdóttir, einn af stofnendum LungA, tóku við viðurkenningunni.

LungA hefur í meira en áratug nýtt sér fjölbreytta styrki í æskulýðshluta Erasmus+ til að byggja upp fjölþjóðlega listahátíð og LungA skólann, fyrsta lýðháskóla á Íslandi. Unnið er út frá hugmyndafræðinni um styrkingu sjálfsins í gegnum listir og skapandi vinnu.

Heiðursviðurkenningin er veitt í tilefni af 30 ára afmæli Erasmus+ í ár. Á afmælishátíðinni voru jafnframt veittar gæðaviðurkenningar Erasmus+ fyrir framúrskarandi Evrópuverkefni og hlutu sex verkefni, sem hafa verið styrkt af áætluninni, viðurkenningarnar í ár. Dómnefnd horfði til gæða, nýsköpunar, yfirfærslumöguleika, áhrifa, varanleika og verkefnastjórnunar við val á verðlaunaverkefnunum. Auk verðlaunaverkefnanna veitti mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, Evrópumerkið, viðurkenningu á sviði tungumálanáms og kennslu.

Hér má sjá yfirlit yfir verkefnin sem hlutu viðurkenningarnar í dag:

Flokkur Skóli/stofnun Heiti verkefnis    
Háskólastig Listaháskóli Íslands Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf
Leik-, grunn og framhaldsskólastig Skólaþjónusta Árborgar Nám, störf og lærdómssamfélög
Starfsnám Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins Deilt til árangurs    
Fullorðinsfræðsla EVRIS Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið
Æskulýðsstarf Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Út fyrir þægindarammann  
eTwinning - rafrænt skólasamstarf Leikskólinn Holt, Reykjanesbæ Gegnum lýðræði til læsis  
Evrópumerkið Borgarbókasafn Menningarmót - Fljúgandi teppi
Heiðursviðurkenning LungA Samfélagsleg sjálfbærni  








Þetta vefsvæði byggir á Eplica