Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi

20.1.2017

 

Þriðjudaginn 24. janúar nk. munu fulltrúar evrópskra samstarfs­áætlana og þjónustu­skrifstofa ásamt sendinefnd ESB kynna styrki og samstarfs­möguleika í Evrópu­samstarfi. Kynningin verður haldin kl. 11:00-13:00 í Háskólanum í Reykjavík, í miðrými sem kallað er Sól, og kl. 14:00-16:00 í Háskóla Íslands, á Háskólatorgi.

 

 

Samstarfsáætlanir ESB styrkja íslensk fyrirtæki, stofnanir og skóla um 2,3 milljarða á ári 

Árið 2016 hlutu íslensk fyrirtæki, stofnanir, skólar, félagasamtök og einstaklingar rúmlega 2,3 milljarða króna, eða um 19,4 milljónir evra, í styrki úr samstarfsáætlunum ESB. Stærstu styrkirnir fóru í rannsóknar-, nýsköpunar og menntaverkefni en háir styrkir fengust sömuleiðis til æskulýðsmála, menningar, kvikmyndagerðar, jafnréttismála, atvinnumála, fyrirtækjasamstarfs og almannavarna.

Evrópusamvinna er samstarfsvettvangur samstarfsáætlana ESB á Íslandi, sjá www.evropusamvinna.is. Þar er að finna upplýsingar um allar samstarfsáætlanir sem Ísland er þátttakandi í innan Evrópusambandsins. Áætlanirnar eru reknar af mismunandi aðilum og er vefsíðunni ætlað að auðvelda yfirsýn yfir helstu áætlanir sem Íslendingar taka þátt í, en allt frá tilkomu EES samningsins árið 1993 hafa íslenskir aðilar tekið virkan þátt í margs konar Evrópusamstarfi. Á síðunni er einnig að finna kort með heildstæðu yfirliti frá árinu 2000 um dreifingu styrkja milli landsvæða og sveitarfélaga.

Áætlanir sem verða kynnar:

  • Almannavarnaráætlunin
  • COST rannsóknasamstarf
  • Creative Europe – kvikmyndir og menning
  • Enterpise Europe Network
  • Erasmus for Young Entrepreneurs
  • Erasmus+ menntun, æskulýðsmál og íþróttir
  • eTwinning – rafrænt skólasamstarf
  • Euraxess – evrópskt rannsóknarstarfatorg
  • EURES – evrópsk vinnumiðlun
  • Europass – evrópsk ferilskrá og færnipassi
  • Evrópa unga fólksins
  • Heilbrigðisáætlun ESB
  • Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun
  • Nordplus – norræn menntaáætlun
  • Rights, Equality and Citizenship Programme
  • Uppbyggingarsjóður EES

Tækifæri fyrir skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til evrópsks samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.

Allir velkomnir.

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica