Umsóknafrestur er til og með 27. mars næstkomandi.
Um 65 kennarar frá 17 löndum koma saman til að læra um eTwinning og hvernig eTwinning samstarf getur stutt við læsi á margvíslegan hátt. Lykilatriði að kennarar finni samstarfsaðila, deili reynslu, og stofni eTwinning verkefni.
Þema: Læsi (literacy).
Styrkur: Styrkur fyrir 2 íslenska kennara í boði fyrir ferðakostnaði. Gistingu og uppihald á ráðstefnudögum er greitt af Landskrifstofu eTwinning beint til skipuleggjenda. Við úthlutun er meginreglan sú að ekki fari nema einn frá hverjum skóla.
Greiðsla: Styrkurinn er greiddur eftir að skýrslu um ferðina hefur verið skilað.
Fyrir hverja? Grunnskólakennarar sem vinna með læsi í öllum fögum, með nemendur á aldrinum 5-11 ára.
Markmið: Allir þátttakendur stofni eTwinning verkefni með kennara frá öðru Evrópulandi.
Reynsla: Bæði fyrir byrjendur og lengra komna í eTwinning.
Tungumál: Dagskráin fer fram á ensku.
Dagskrá: Hefst kl. 15 þann 25. maí og lýkur á hádegi 27. maí. Endanleg dagskrá liggur ekki fyrir en hún mun samanstanda af fyrirlestrum og vinnustofum sem tengjast eTwinning samstarfi. Þungamiðjan verður skipulagning og stofnun verkefna með stuðningi starfsfólks landskrifstofa eTwinning.
Skilyrði: Að taka þátt í allri dagskránni; að kynna eTwinning og segja frá ráðstefnunni í skólanum, einnig að hvetja aðra kennara til þess að taka þátt í eTwinning og styðja þá.
Umsóknafrestur er til og með 27. mars næstkomandi.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.