Erasmus+ áætlunin eitt það besta sem Evrópusambandið hefur staðið fyrir

7.2.2018

Nýverið var birt miðmat á Erasmus+ áætluninni og forverum hennar, en áætlunin varir frá 2014-2020. Matið var mjög umfangsmikið og byggir á skýrslum frá öllum þátttökuríkjunum, mati frá óháðu matsfyrirtæki sem tók mikinn fjölda viðtala og loks voru rýnd svör meira ein milljón þátttakenda Erasmus+.

Matið dregur upp mjög jákvæða mynd af Erasmus+ áætluninni og er ávinningurinn fyrir þá einstaklinga sem taka þátt mjög skýr. Á þeim tíma sem matið tók til nutu ríflega 4 milljónir einstaklinga stuðnings frá áætluninni sem er sú lang stærsta í heiminum. Almenningur telur að Erasmus+ sé einn jákvæðasti þátturinn við samrunaþróun í álfunni.

Framkvæmdastjórn ESB hefur þegar tekið tillit til þess sem fram kemur í matsskýrslunni og hefur kynnt hugmyndir um evrópskt menntasvæði – European Education Area – þar sem lögð verður áhersla á að æ fleiri nemendur verði á faraldsfæti milli landa. Lögð verður áhersla á að fjölga nemendum á framhaldsskólastigi, starfsnámsnemum og þeim sem búa við færri tækifæri. Gera má ráð fyrir að þegar kynntar verða fyrstu tillögur að arftaka Erasmus+ áætlunarinnar síðar á þessu ári verði lögð áhersla á að ná til sem enn fleiri og auka heildarfjölda þátttakenda.

  • Matsskýrsluna í heild sinni má nálgast á öllum opinberum tungumálum ESB, ásamt greinargerð frá framkvæmdastjórn ESB og sérstökum matsskýrslum um afmarkaða þætti.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica