Forsvarsmenn nýrra Erasmus+ samstarfsverkefna í leik-, grunn- og framhaldsskólum skrifuðu í dag undir samninga við Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi.
Styrkupphæðinni, rúmlega 441 þúsund evra var úthlutað til tuttugu verkefna frá 18 skólum víðs vegar um land. Hæsti styrkurinn sem nemur 46 þúsund evrum rennur til Menntaskólans í Reykjavík til verkefnis varðandi nýtingu jarðefna og sjálfbærni í því sambandi. Til viðbótar styrkti Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi fjögur sams konar skólaverkefni um rúmlega 737.295 þúsund evrur. Þannig að nú á haustmánuðum fara 24 verkefni af stað með þátttöku íslenskra skólastofnana fyrir tæplega 1,2 milljónir evra eða um 154 milljónir íslenskra króna.
Verkefnin sem hlutu styrk eru afskaplega fjölbreytt. Hvað varðar þemu þá snúa nokkur að frumkvöðlafræðum, eitt verkefni snýr að þjóðsögum og menningu, annað að fjölmenningu, nokkur eru tengd raunvísindakennslu og vísindum og enn önnur snúa að því að hlúa að þeim sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu. Tvö verkefnanna tengjast umhverfismálum. Verkefni Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki skoðar möguleika á því að framleiða umhverfisvænar hleðslustöðvar fyrir reiðhjól. Nemendur á ólíkum aldri taka virkan þátt í mörgum verkefnum, s.s. í gegnum nemendaskipti.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrk að þessu sinni:
Alls 20 verkefni – samtals 441.295 evrur (um 57 milljónir)*
Styrkþegi: | Nafn á verkefni: | € |
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Crossroads with the future: digital technology and education | 18.960 |
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | Reporters without frontiers | 31.415 |
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | Load easy - drive clean | 19.460 |
Leikskólinn Klambrar | Standards in early education for all | 18.920 |
Grunnskólinn í Hveragerði | Sharing Legends and Myths | 14.870 |
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu | Sharing competencies in entrepreneurial learning. | 24.655 |
Lækjarskóli | Happily Ever After... | 15.520 |
Víkurskóli | R.E.S.P.E.C.T. (Respectful European Schools Pursue Equality & Cultural Tolerance) | 20.320 |
Sæmundarskóli | EUROPEANIZE YOURSELF : one Europe one people | 24.405 |
Sæmundarskóli | What makes the difference | 20.875 |
Ölduselsskóli | Move Together to an Healthy European Way | 24.000 |
Landakotsskóli | Bridging the Multicultural Diversities in Education | 7.520 |
Leirvogstunguskóli | Learn to Play, Play to Learn': A European Focus on Structured Play in Early Childhood. | 27.050 |
Fjölbrautaskóli Suðurlands | H2O not wasted | 24.870 |
Krikaskóli | Reach for the Stars | 21.075 |
Grunnskóli Bolungarvíkur | Let's talk about Europe | 26.640 |
Menntaskólinn í Reykjavík | Geo-resources - sustainability of a future generation | 46.760 |
Leikskólinn Furugrund | Tilfinningagreind | 22.750 |
Grunnskólinn á Bakkafirði | Engaging Young Entrepreneurs | 16.230 |
Víðistaðaskóli | Math 3.0. Amazing trip through history | 15.000 |
*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.