Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heldur ráðstefnuna Digital Education Stakeholder Forum 2025 þriðjudaginn 24. júní í Brussel og geta öll áhugasöm skráð sig til að fylgjast með í beinu streymi frá kl. 07:30 til 11:15 að íslenskum tíma.
Ráðstefnugestir munu fá innsýn í stöðu mála í framkvæmd aðgerðaráætlunar Evrópusambandsins í stafrænni menntum (Digital Education Action Plan - 2021-2027), fyrirhuguð næstu skref Evrópusambandsins í málaflokknum og álit sérfræðinga á þróun stafrænnar menntunar til ársins 2030.
Ráðstefnan á erindi til þeirra sem starfa í skólum, í stjórnsýslu, félagasamtökum og öðrum stofnunum sem vinna að stafrænni menntun og stefnumótun í málaflokknum sem og þeirra sem stefna á að sækja um Erasmus+ samstarfsverkefni, en stafræn þróun er ein af fjórum áhersluatriðum núverandi áætlunar.
Allar nánari upplýsingar um viðburðinn og skráning hér .
jan., feb., mar., apr., maí, jún., júl., ágú., sep., okt., nóv., des.