Þátttökuverkefni

Fyrir hverja?

Ungt fólk á aldrinum 13-30 ára. Samtök, sveitarfélög, stofnanir og ungt fólk geta sótt um styrk. Hópur ungs fólks sem sækir um styrk þarf að samanstanda af a.m.k. 4 ungum einstaklingum.

Til hvers?

Markmiðið með svona verkefnum er að hvetja ungt fólk til virkni og þátttöku, með áherslu á þátttöku í ákvörðunartöku í málefnum ungs fólks. Verkefnin ættu að miða að því að efla persónulega og félagslega hæfni ungs fólks. Þannig efla þau gildi eins og samstöðu, lýðræði og vináttu og efla persónulega, félagslega, borgaralega og stafræna hæfni til virkrar samfélagsþátttöku.

Þátttökuverkefni (Youth Participation Activities) geta verið t.d. vinnusmiðjur, umræður, hlutverkaleikir, vitundarvakningarherferðir, námskeið, fundir, ráðstefnur, samráð í stefnumótun, upplýsinga- og/eða menningarviðburðir o.fl. Þátttökuverkefni geta verið bæði innanlandsverkefni sem og samstarf milli landa.

Sótt er um rafrænt á Erasmus+ og ESC torginu. Sjá nánari upplýsingar um umsóknarferlið á síðunni Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Hvert er markmiðið?

  • Veita ungu fólki tækifæri til almennrar þátttöku í lýðræðislegu samfélagi. Sérstök áhersla er á inngildingu og fjölbreytileika.
  • Almenn lýðræðisleg og samfélagsleg þátttaka sem miðar að borgaralegri, efnahagslegri, félagslegri, menningarlegri og pólitískri þátttöku ungs fólks óháð bakgrunni.
  • Fræða ungt fólk um þýðingu þess að taka þátt.
  • Auka vitund ungs fólks um sameiginleg gildi og grundvallarréttindi í Evrópu, þar á meðal þátttöku með það að markmiði að ná einu eða fleiri af æskulýðsmarkmiðum ESB; European Youth Goals.
  • Auka stafræna hæfni og fjölmiðlalæsi hjá ungu fólki. Auka gagnrýna hugsun og hæfni til að meta og vinna með upplýsingar og auka þol ungs fólks gagnvart óupplýsingum, falsfréttum og áróðri.
  • Leiða saman ungt fólk og þau sem taka ákvarðanir um málefni ungs fólks.
  • Veita ungu fólki tækifæri að hitta jafnaldra frá öðrum Evrópulöndum

Forgangsatriði

Helstu forgangsatriði snúa að því að tryggja aðgengi allra að áætluninni, umhverfisvænt alþjóðastarf, aukna stafræna þróun og færni sem og sameiginleg gildi og borgaralega þátttöku.

Áhersla er á að verkefnin séu æskulýðsdrifin og sé framlag til gagnlegrar samfélagsþátttöku. Verkefnin eiga að skila því að raddir ungs fólks heyrist í stefnumótun og ákvörðunartöku um málefnum sem snúa að þeim.

Hverjir geta sótt um?

  • Samtök, stofnanir, sveitarfélög
  • Óformlegur hópur ungs fólks: a.m.k. 4 einstaklingar á aldrinum 13-30

Lögaðilar og ungmennahópar í þátttökulöndum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu.  Mögulegt er  að vinna með aðilum í öðrum löndum.

Hvað er styrkt/ Styrkupphæðir?

  • Hámarks styrkur fyrir þátttökuverkefni er € 60.000.
  • Umsýslustyrkur vegna verkefnastjórnunar: € 500 á mánuði fyrir kostnað sem tengist t.d. undirbúningi, framkvæmd, mati, miðlun og eftirfylgni.
  • Styrkur vegna leiðbeinanda (coach) fyrir ungmennahópa: € 241 á dag í hámark 12 daga, ef viðburðurinn er haldinn hérlendis. Sjá upphæð vegna leiðbeinenda í öðrum löndum í Erasmus+ handbók.
  • € 100 fyrir hvern einstakling sem tekur þátt í þátttökuverkefni. Þessi styrkur er til að styðja við framkvæmd verkefnisins.
    - Á ekki við um starfsfólk né ungmennahóp sem leiðir þátttökuverkefni
  • Styrkur vegna inngildingar - 100% raunkostnaður
  • Hér er átt við aukinn stuðning fyrir þátttakendur til jafnrar þátttöku sem getur t.d. falist í því að bæta kostnað ferða og uppihalds fyrir sérfræðinga eins og fylgdarmanneskjur, iðju/þroskaþjálfa, sálfræðinga, túlka o.fl.
  • Styrkur vegna ferðakostnaðar þeirra sem búa fjarri alþjóðaflugvöllum (fyrir fjölþjóðlega viðburði) - 80% raunkostnaður.
  • Styrkur vegna vegabréfsáritana, bólusetninga og læknisvottorða - 100% raunkostnaður.
  • € 31 - € 56 fyrir hvern einstakling á dag sem tekur þátt í viðburðum í þátttökuverkefni (fer eftir hvar þau eru haldin, t.d. € 51 fyrir Ísland). Þessi styrkur er fyrir uppihald; gistingu og mat í verkefninu.
  • Styrkur vegna ferða fyrir alla þátttakendur mældur í vegalengdum á milli staða í beinni loftlínu. Þau sem ferðast með grænum ferðamáta geta fengið allt að fjóra ferðadaga. Hér er reiknivél fyrir vegalengdir.
Vegalengd Hefðbundinn
ferðastyrkur

Grænn
ferðamáti

10 – 99 km € 28 € 56 
100 – 499 km € 211 € 285
500 – 1999 km € 309 € 417
2000 – 2999 km € 395 € 535
3000 – 3999 km € 580 € 785
4000 – 7999 km € 1188  
8000 km og lengra € 1735  

Málefni og forgangsatriði þátttökuverkefna

Hægt er að styðjast við málefni og forgangsatriði tilgreind í EU Youth Dialogue sem geta verið innblástur fyrir þátttöku ungs fólks. Einnig er hægt að styðjast við æskulýðsmarkmið ESB; European Youth Goals sem tilgreina þverfagleg svæði sem hafa áhrif á líf ungs fólks.

Þátttökuverkefni þurfa að gera ráð fyrir stuðningi við ígrundunarferli, viðurkenningu á lærdómi eða upplifun þátttakenda, einkum í gegnum YouthPass.

Inngilding og fjölbreytileiki ættu að vera hluti af þátttökuverkefnum þar sem tekið er til greina jöfn tækifæri til þátttöku og aðgengi fyrir allt ungt fólk.

Þátttökuverkefni ættu að efla umhverfislega sjálfbærni og ábyrgja hegðun meðal þátttakenda, auka meðvitund um mikilvægi þess að draga úr eða bæta upp umhverfisfótspor verkefnisins.

Framkvæmd verkefna þurfa að fylgja gæðaviðmiðum æskulýðsverkefna Erasmus+: Erasmus Youth Quality Standards um skipulagningu á gæðaverkefnum. Í gæðaviðmiðunum eru meginmarkmið áætlunarinnar sem og leiðbeiningar um framkvæmd verkefna sem snúa að undirbúningi þátttakenda, skilgreiningum, mati og viðurkenningu á lærdómi og upplifun, miðlun útkomu verkefna o.fl. Hægt er að nálgast íslenska útgáfu gæðaviðmiðanna hér.

Skilyrði úthlutunar

Áður en sótt er um þarf að ganga úr skugga um að samtökin/stofnunin/fyrirtækið sem sækir um styrkinn sé með svokallað OID númer. Til að sækja slíkt númer þarf EU-login aðgang. Hér eru nánari upplýsingar um hvernig sótt er um í Erasmus+ sem og ítarlegar leiðbeiningar um EU-login aðgang og OID númer. 

Athugið að styrkurinn er ekki hugsaður fyrir lögboðna fundi samtaka eða tengslaneta né skipulagningu pólitískra flokksviðburða.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica