Youthpass

Youthpass er tæki sem nýtt er til þess að staðfesta þátttöku og meta lærdómsreynslu í æskulýðsverkefnum Erasmus+ og European Solidarity Corps. Youthpass er gefinn út af þeim sem skipuleggja verkefnin en byggir á sama formi og SALTO-Youth hefur þróað.

Búðu til Youthpass

Youthpass þáttakendur halda á plaggi sem blóm spretta úrStaðfesting á þátttöku

Helstu upplýsingar um þátttakandann og verkefnið koma fram á Youthpass. Hlutverk verkefnatjórans í Erasmus+ verkefninu er að skrá þessar upplýsingar í Youthpass kerfinu. Youthpass getur meðal annars verið gagnlegt til þess að tilgreina óformlegt nám fram á ferilskrá. 


Hér getur þú séð eintak af Youthpass fyrir þátttöku í ungmennaskiptaverkefni.

Mat á lærdómsreynslu

Þátttakendur geta metið eigin lærdóm og skrifað matið inn í Youthpass. Það er hlutverk verkefnastjóra að bjóða og kenna þátttakendum að nýta sér slíkt sjálfsmat. Matinu er skipt niður í átta færniþætti sem tengdir eru og byggja á hver öðrum: 

  • Móðurmál
  • Erlend tungumál
  • Stærðfræði og vísindi
  • Tölvulæsi
  • Skipulagning á eigin námi 
  • Tengslamyndun, samskipti og samfélagsvitund 
  • Frumkvæði, verkefnastjórnun og nýsköpun
  • Menning og listir

Frekari upplýsingar:

Lestu meira um lykil-færniþættina á bæði íslensku og ensku.

Hér eru nokkrar tegundir af upplýsingabæklingum sem verkefnastjórar geta prentað út og nýtt sér þegar þeir kynna Youthpass fyrir viðeigandi þátttakendum, þ.e. ungu fólki, starfsfólki og/eða sjálfboðaliðum.  

Nálgastu eintak af Youthpass fyrir þátttöku í starfsþjálfunarverkefni þar sem sjálfsmati er bætt við.

Hér er að finna handbækur sem geta hjálpað verkefnastjórum að vinna með Youthpass og viðurkenningu á óformlegu námi. 

Ný stefna um Youthpass var gefin út í september 2021 og má nálgast hana hér.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica