Europass prófíll

Europass-prófillinn

  • Þú getur útbúið ókeypis prófíl með Europass þar sem öll kunnátta þín, menntun, hæfni og reynsla er tekin saman á einum öruggum stað á netinu.
  • Þú getur skráð alla reynslu þína, hvort sem er starfsreynslu, nám eða þjálfun, tungumálafærni, stafræna færni, upplýsingar um viðfangsefni þín, reynslu af sjálfboðaliðastörfum og í raun allt það sem þú hefur fengist við og skiptir þig máli
  • Þú getur einnig geymt prófskírteini, meðmælabréf og önnur skjöl sem lýsa árangri þínum í þínu eigin Europass-skjalasafni
  • Prófíllinn getur þú skapað á 30 ólíkum tungumálum

Hvernig getur þú nýtt þér Europass-prófílinn?

  • Með Europass-prófílnum getur þú vandlega ígrundað áhugasvið þín og markmið
  • Notaðu Europass-prófílinn til að hafa yfirsýn yfir árangur þinn í námi go starfi og gera hann sýnilegan gagnvart núverandi og framtíðar vinnuveitendum.
  • Fáðu tillögur um áhugaverð störf og námskeið sem hæfa þér.
  • Deildu prófílnum þínum með mögulegum vinnuveitendum og ráðningarskrifstofum til að fá ný atvinnutækifæri
  • Deildu prófílnum með menntastofnunum til að fá upplýsingar um ný námskeið og menntungarmöguleika
  • Deildu prófílnum með náms- og starfsráðgjöfum til að fá sérhæfða ráðgjöf í sambandi við ferilinn þinn
  • Útbúðu umsóknir. Þú getur haldið utan um allar umsóknir og útbúið ferilskrár og fylgibréf, með mismunandi sniðmátum, stíl og tungumálum.

Búa til Europass prófíl








Þetta vefsvæði byggir á Eplica