Dagana 23.–25. október 2025 verður árlega eTwinning ráðstefnan haldin í Brussel undir yfirskriftinni “Fögnum því sem sameinar okkur”. Þar verður áhersla lögð á lýðræðisþátttöku, samevrópsk gildi og lífsleikni í menntun. Sækja þarf um fyrir 20. júní 2025.
Ráðstefnan er ætluð kennurum sem hafa reynslu af eTwinning og vilja efla sig sem notendur og áhrifavaldar innan netkerfisins. Í ár er ráðstefnan bæði vettvangur til að fagna lokum yfirstandandi þema um lýðræðislega þátttöku og til að kynna þemað fyrir 2025–2026: "Hæfni til framtíðar", þar sem áhersla verður lögð á læsi, stærðfræði, stafræna færni, vísindi og borgaravitund.
Dagskráin inniheldur fyrirlestra, vinnustofur og tækifæri til tengslamyndunar sem miða að því að styrkja faglegt samstarf, kveikja nýjar hugmyndir að eTwinning verkefnum og efla faglegt sjálfstraust þátttakenda.
Valdefla kennara sem „power users“ í eTwinning – virka, reynslumikla notendur sem hvetja aðra.
Eiga þátt í mótun samfélagskenndar innan eTwinning.
Bjóða upp á hagnýta þekkingu um hvernig hægt er að samþætta borgaravitund og lífsleikni í skólastarfi.
Kynna framúrskarandi eTwinning verkefni sem tengja lýðræði og lífsleikni.
Hvenær? 23.–25. október 2025
Hvar? Le Plaza Brussels, Brussel, Belgía
Fyrir hverja? Kennara með reynslu af eTwinning
Tungumál: Enska
Fjöldi frá Íslandi: Tveir
Ferðastyrkur: eTwinning landskrifstofan greiðir flug, gistingu og matarkostnað yfir ráðstefnudaga
Skilyrði: Að kynna eTwinning og ráðstefnuna í þínum skóla að lokinni ferð og skila stuttri ferðasögu til landskrifstofunnar
Skráningu þarf að ljúka fyrir 20. júní 2025.