Rannís leitar að kennurum í leik-, grunn- eða framhaldsskólum sem vilja gerast eTwinning sendiherrar frá og með haustönn 2026. Sendiherrar styðja við framþróun eTwinning, veita ráðgjöf, halda kynningar og taka þátt í norrænu og evrópsku netstarfi. Sérstaklega er leitað að sendiherrum á Austurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum, en allar umsóknir eru hjartanlega velkomnar.
Ertu virk(ur) í eTwinning og nýtir stafrænar aðferðir markvisst í kennslu? Hefurðu áhuga á að styðja við kollega þína, deila hugmyndum og hvetja til skapandi samstarfs – bæði hér heima og víðs vegar um Evrópu? Þá gæti eTwinning sendiherrastarf verið næsta skref fyrir þig.
eTwinning hjá Rannís leitar að nýjum eTwinning sendiherrum frá og með 2026 til að ganga til liðs við öflugt sendiherrateymi.
Sérstaklega er leitað að sendiherrum á Austurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum – en allar umsóknir eru hjartanlega velkomnar.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2026.
Umsókn með kynningarbréfi og ferilskrá sendist á etwinning@rannis.is
Sendiherra er kennari sem er virkur í eTwinning, styður kollega, heldur kynningar og hjálpar til við að efla alþjóðlegt samstarf í skólum. Hlutverkið felur einnig í sér þátttöku í norrænu og evrópsku tengslaneti.
Við leitum að kennurum sem:
eTwinning sendiherrar eru ekki starfsfólk Rannís, en fá styrk fyrir störf sín í formi greiðslu á hverri önn. Styrkurinn styður við verkefni sendiherrans, svo sem að halda kynningar, veita ráðgjöf og stuðning, og taka þátt í þjálfun og fundum.
Forsenda þátttöku er að skólastjórnendur séu samþykkir sendiherrastarfinu og styðji við þau verkefni sem því tengjast. Sendiherrastarfið er skuldbinding til eins árs í senn. Sendiherrar taka yfirleitt þátt í árlegum fundi Landskrifstofu eTwinning og geta einnig átt kost á að sækja norrænar og evrópskar ráðstefnur og fundi.
Við val á eTwinning sendiherrum er tekið mið af því á hvaða landsvæði umsækjendur starfa, til að tryggja að hvert landsvæði á Íslandi hafi virkan sendiherra sem getur stutt við skólasamfélagið á svæðinu.
Ef þú hefur spurningar, vinsamlegast hafðu samband við okkur á etwinning@rannis.is