Löndin sem tilheyra eTwinning Plus eru á jaðri Evrópusambandsins: Úkraína, Túnis, Moldóva, Georgía, Armenía, Aserbaídsjan, Jórdanía og Líbanon.
Við hvetjum ykkur til að skoða þennan spennandi möguleika til að stækka samstarfsnetið og kynnast nýjum skólasamfélögum.
Farið inn á eTwinning Live svæðið, smellið á Edit undir nafninu ykkar, og þar, undir My interests, hakið þið við "I am available for an eTwinning Plus project". Þá getið þið leitað að kennurum frá löndum eTwinning Plús og þeir geta fundið ykkur. Þið getið einnig boðið þeim inn í verkefni og tekið þátt í tölvutorgi (forum) helgað eTwinning Plús.