OID númer

OID númer er einkenniskóði sem lögaðilar og óformlegir hópar þurfa að hafa til að geta sótt um í Erasmus+ og European Solidarity Corps. Allir umsækjendur þurfa OID númer, samstarfsaðilar í öllum samstarfsverkefnum og samstarfsaðilar sumum umsóknum í nám og þjálfun.

Áður en sótt er um styrk í Erasmus+ eða European Solidarity Corps þarf að sækja OID númer fyrir lögaðilann, hafi það ekki þegar verið gert. Hægt er að sækja OID númer á Erasmus+ og ESC torginu en til að skrá sig þar inn þarf EU Login aðgang. Hver lögaðili ætti aðeins að hafa eitt OID númer. Með því að sækja OID númer verður viðkomandi tengiliður vegna þess og getur þurft að uppfæra upplýsingar á komandi árum auk þess að skila inn fylgigögnum. Það getur því verið gott að viðkomandi starfi miðlægt hjá lögaðilanum og hafi yfirsýn yfir þátttöku í alþjóðlegum verkefnum. Athugið að hægt er að búa til EU Login aðgang á netfang sem ekki er skráð á einstakling heldur t.d. á almennt netfang eins og skoli@skoli.is. Eins er hægt að veita öðrum einstaklingum aðgang að OID skráningunni.

Hvar finn ég OID númer?

Þú getur flett upp hvort þinn lögaðili sé með skráð OID númer. Eins getur þú leitað eftir OID númerum samstarfsaðila.

Hvernig sæki ég OID númer?

Skráðu þig inn á Organisation registration á Erasmus+ og ESC torginu með EU Login aðganginum þínum. Kannaðu hvort OID númer sé þegar til staðar fyrir þinn lögaðila, sé það ekki til færð þú upp möguleika á að sækja nýtt OID númer. Leiðbeiningar á íslensku má nálgast í viðhenginu hér fyrir neðan. Athugið að leiðbeiningarnar miðast við lögaðila (s.s. fyrirtæki, stofnanir, samtök) en ekki óformlega hópa sem geta sótt um í ungmennaskipti og þátttökuverkefni í æskulýðsstarfi. Óformlegir hópar sækja OID númer eins og um einstakling sé að ræða. Þurfir þú aðstoð eða leiðbeiningar til að sækja OID númer fyrir óformlegan hóp hafðu þá samband við landskrifstofu.

· Leiðbeiningar á íslensku um OID skráningu.

Hvað er staðfesting á OID?

Landskrifstofa þarf að staðfesta (NA certification) OID númer áður en skrifað er undir samninga um styrk, aðild eða gæðavottun. Haft er samband með nánari upplýsingar og leiðbeiningar þegar þörf er á að staðfesta OID númer.

  • Hvaða OID þarf að staðfesta?
    • OID styrkþega
    • OID þeirra sem hljóta aðild og gæðavottun (accreditation í Erasmus+ og quality label í ESC)
    • OID samstarfsaðila í samstarfsverkefnum (KA210 og KA220)
    • OID samstarfsaðila í náms og þjálfunar verkefnum í æskulýðsstarfi (KA152, KA153)
    • OID consortium aðila í náms og þjálfunar verkefnum (KA1)
    • Athugið, ofangreint á líka við um þau verkefni sem fara á biðlista.

  • Hægt er að fletta upp OID númeri eða nafni lögaðila til að kanna hvort búið er að staðfesta OID númer
    • NA certified = staðfest
    • Waiting for NA certification = óstaðfest

  • Til að hægt sé að staðfesta OID númer þarf að skila ákveðnum gögnum, sjá nánar í felliglugganum hér fyrir neðan.
  • Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi sér um að staðfesta OID númer íslenskra aðila bæði í íslenskum og erlendum verkefnum
  • Erlendir samstarfsaðilar í íslenskum verkefnum eru staðfestir af landskrifstofu í sínu landi.

Hvaða gögnum þarf að skila svo hægt sé að staðfesta OID?

Ekki þarf að skila öllum gögnunum sem hér eru listuð heldur bara þeim gögnum sem eiga við um ykkar lögaðila. Gögnunum í lið 1 og 2 hér fyrir neðan þarf að skila í öllum tilfellum.

  1. Staðfesting á lagalegri stöðu (Proof of legal status) undirritað og stimplað af löggildum fulltrúa lögaðilans. Einkaaðilar (ehf., samtök og fl.) fylla út eyðublað fyrir Private companies. Opinberir aðilar (stofnanir ríkis og sveitarfélaga) fylla út eyðublað fyrir Public law body. Í eyðublaðið þarf að skrá reikningsupplýsingar lögaðilans, þeim þarf að fylgja reikningsyfirlit eða skjáskot af reikningsupplýsingum, fylgi það ekki með þarf undirskrift og stimpil frá fulltrúa bankans (gjaldkera).  

  2. Vottorð frá Fyrirtækjaskrá um skráningu lögaðila (certificate of registration). Rafrænt undirritað vottorð má nálgast á heimasíðu Fyrirtækjaskrár.

  3. Skólar, leikskólar og félagsmiðstöðvar sem ekki eru með kennitölu heldur starfa undir kennitölu sveitarfélags þurfa að auki að skila stuttri skriflegri staðfestingu á því að vera starfrækt undir stjórn sveitarfélagsins. Þessi staðfesting ætti að vera undirrituð og stimpluð af lögmætum fulltrúa sveitarfélagsins.  

  4. Þeir lögaðilar sem eru með VSK númer þurfa að skila staðfestingu á því frá Ríkisskattstjóra.

Vinsamlegast tryggið að undirskriftir séu til staðar og að réttur aðili skrifi undir. Öllum fylgigögnum þarf að hlaða inn þar sem OID númerið var sótt. Hafir þú aðgang að OID skráninguni getur þú nálgast hana undir „My organisations“ á Erasmus+ og ESC torginu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica