Nám og þjálfun í starfsmenntun

nemendur og starfsfólk

Fyrir hverja?

Skólar, stofnanir og fyrirtæki sem starfa á sviði starfsmenntunar og taka á móti nemum í starfsþjálfun og samningsbundið nám geta sótt um náms- og þjálfunarstyrki fyrir nemendur sína, nýútskrifaða nemendur og starfsfólk sem starfar á sviði starfsmenntunar- og þjálfunar.

Til hvers?

Skólar, stofnanir og fyrirtæki geta sótt um ferða- og uppihaldsstyrki fyrir nemendur í starfsmenntun og starfsfólk til að taka þátt í mismunandi verkefnum í þátttökulöndum Erasmus+ sem og öðrum löndum. 

Nemendum í starfsmenntun og nýútskrifuðum (í eitt ár eftir útskrift) gefst kostur á að fara í námsferðir og starfsnám/þjálfun til útlanda. Þeir geta líka fengið styrk til að taka þátt í nemakeppnum.

Starfsfólk getur sinnt kennslu eða þjálfun hjá samstarfsstofnun erlendis eða stundað starfsþjálfun, s.s. með þátttöku á fagtengdum námskeiðum eða vinnustofum, starfsspeglun  eða tekið þátt í skipulögðum heimsóknum til starfsmenntastofnana.
Einnig eru í boði gestakennsla,  móttaka erlendra sérfræðinga og kennaranema. 

 

Umsóknaflokkar náms- og þjálfunarverkefna í starfsmenntun

Umsóknarflokkar náms- og þjálfunarverkefna eru tveir, þ.e. Erasmus+ aðild og Erasmus+ skammtímaverkefni.

Erasmus+ aðild 
(accredited projects for mobiltiy of learners and staff in vocational education and training)

Þeir sem hafa staðfesta Erasmus+ aðild sækja um námsferðir og starfsþjálfun sinna nemenda og starfsfólks í umsóknum aðildar. Umsóknir eru byggðar á áður samþykktri Erasmus áætlun þannig að ekki er krafist nákvæmrar framkvæmdaáætlunar, heldur er áhersla lögð á umfang alþjóðastarfs á tímabili verkefnisins. Úthlutun til einstakra skóla/stofnana byggir á eftirfarandi atriðum:

  • Heildarupphæð úthlutaðs fjármagns til náms- og þjálfunarverkefna í starfsmenntun

  • Umsókn og áætlun hvers skóla/stofnunar

  • Grunnstyrk og hámarksstyrk hvers skóla/stofnunar

  • Árangri hvers skóla/stofnunar varðandi nýtingu fjármagns, framkvæmd verkefna og stuðningi við áherslatriði Erasmus+ áætlunarinnar um inngildingu, umhverfismál og stafræna kennsluhætti

Gildistími verkefna: 15 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+ og önnur lönd

Þeir sem hafa staðfesta Erasmus+ aðild geta einnig sótt um samstarfsnet (consortiom) verkefni fleiri skóla/stofnana/ fyrirtækja.

Erasmus+ skammtímaverkefni (Short term mobility projects)

Þeir sem ekki hafa Erasmus+ aðild geta sótt um námsferðir og starfsþjálfun sinna nemenda og starfsfólks í umsóknum skammtímaverkefna.

Skammtímaverkefni eru góður kostur fyrir þá sem eru að sækja um í fyrsta sinn og þá sem ekki stefna að reglulegri þátttöku í áætluninni en vilja taka þátt  af og til. Aðeins er hægt að sækja um skammtímaverkefni þrisvar sinnum á fimm ára tímabili.

Gildistími verkefna: 6 – 18 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+

Aðrar leiðir til þátttöku í Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefnum

  • Samstarfsnet (consortia): Það getur verið góður kostur að taka þátt í samstarfsneti með öðrum starfsmenntaaðilum á sviði starfsmenntunar.
  • Móttökuaðili: Að taka á móti þátttakendum frá samstarfsaðilum í öðrum löndum er lærdómsríkt og getur lagt grunninn að frekara samstarfi og umsókn síðar. Sjá leiðbeiningar um Erasmus+ vinnustaðanám.

Tækifæri Erasmus+ í starfsmenntun fyrir nemendur og starfsfólk

Tækifæri nemenda í starfsmenntun eru eftirfarandi:
Erasmus+ veitir nemendum í starfsmenntaskólum, nemum í samningsbundnu námi og í starfsþjálfun tækifæri til að fara í náms- og þjálfunarferðir og starfsnám hjá fyrirtækjum, skólum og stofnunum í öðru landi. Dvölin getur verið í þátttökulöndum Erasmus+ og einnig í öðrum löndum. Námið/þjálfunin skal vera hluti af námi viðkomandi nemanda og metið sem slíkt að dvöl lokinni nema í tilfellum starfsþjálfunar eftir að námi lýkur.

Rík áhersla er lögð á gæði þjálfunar nemenda og ber að fylgja gæðaviðmiðum Erasmus+ (Quality Standards). Í því sambandi ber að framfylgja ákveðnu ferli við undirbúning og framkvæmd ferða. Gerður er samningur við þátttakendur og samkomulag við móttökuaðilann um þjálfun. Að dvöl lokinni skal móttökuaðilinn staðfesta dvöl og lærdóm.

  • Nám/þjálfun í starfsmenntastofnunum, skólum og fyrirtækjum (Short-tem learning mobility of VET learners)
    Dvalarlengd: 10 - 89 dagar

  • Lengri dvöl - Nám/þjálfun í starfsmenntastofnunum, skólum og fyrirtækjum (ErasmusPro: Long-term learning mobility of VET learners
    Dvalarlengd: 90 - 365 dagar

  • Nám og þjálfun fyrir nemendahópa (Group mobility of VET learners)
    Dvalarlengd 2 – 30 dagar; lágmarksfjöldi nemenda í hverjum hópi: 2

  • Þátttaka í nemakeppnum (skills competitions): Nemendur geta tekið þátt sem og starfsmenn sem styðja við þá.
    Dvalarlengd: 1 - 10 dagar

    Dvalarlend nemenda sem hafa minni möguleika til þátttöku getur verið styttri en nefnt er hér fyrir ofan eða allt frá 2 dögum, þ.e. þegar sýnt er fram á að það sé nauðsynlegt.

    Í náms- og þjálfunarverkefnum má bjóða upp á blandað nám (blended learning) en dvalartíminn sem gefinn er upp hér fyrir ofan snýr að raunverulegri dvöl í móttökulandi.

 

Tækifæri starfsfólks í starfsmenntun eru eftirfarandi:

  • Starfsspeglun (Job shadowing):
    Dvalarlengd: 2 – 60 dagar

  • Gestakennsla í skólum, stofnunum og fyrirtækjum í öðru landi  (Teaching or training assignments):
    Dvalarlengd: 2 – 365 dagar

  • Fagtengd námskeið og þjálfun (courses and training):
    Dvalarlengd: 2 dagar – 30 dagar
    Styrkur vegna námskeiðsgjalda er takmarkaður við 10 daga
    Umsækjendur velja námskeið. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar varðandi gæði námskeiða.

  • Þátttaka starfsfólks í nemakeppnum (skills competitions) enda séu þátttaka þeirra bundin við stuðning við nemendur skólans sem eru að taka þátt.

Önnur tækifæri 

  • Undirbúningsheimsóknir sem farnar eru til að skipuleggja ákveðnar ferðir nemenda og starfsfólks með það að markmiði að auka gæði t.d. lengri dvalar,  ferðir þátttakenda með minni möguleika á þátttöku o.fl.  Hámarksfjöldi þátttakenda hverrar ferðar eru þrír.

  • Móttaka sérfræðinga frá skólum og stofnunum annarra landa (Invited Experts)
    Dvalarlengd 2 - 60 dagar

  • Móttaka kennara- og leiðbeinendanema  frá skólum annarra landa (Hosting teachers and educators in training). Aðeins umsýslustyrkur fyrir móttökuaðila, nemar þurfa að sækja um ferða- og uppihaldsstyrk í sínu heimalandi.
    Dvalarlengd 10 - 365 dagar

Til þess að tryggja jöfn réttindi er mögulegt að sækja um styrki fyrir þátttakendur sem hafa minni möguleika til þátttöku. Um er að ræða styrki fyrir fylgdarmenn og vegna nauðsynlegs viðbótarkostnaðar. Þeir sem hafa Erasmus+ aðild geta sótt um viðbótarstyrk vegna þeirra sem hafa minni möguleika á þátttöku á verkefnistímanum.

Hvert er markmiðið?

Markmið náms- og þjálfunarferða nemenda er að auka hæfni þeirra og þekkingu á sínu fagsviði, efla sjálfstraust og tungumálakunnáttu, sem og að kynnast menningu og venjum annarra landa.

Markmið starfsþjálfunarferða starfsfólks er að efla færni og þekkingu sem nýtist innan skóla og stofnana og skal dvölin með beinum hætti tengjast stefnumörkun stofnunarinnar sjálfrar og markmiða með þátttöku í alþjóðasamstarfi.

Efling alþjóðastarfs skóla, stofnana og fyrirtækja er einnig mikilvægt markmið þessa verkefnaflokks. Erasmus+ aðild styður vel við það markmið með reglulegri þátttöku þeirra sem hafa fengið staðfesta aðild.

Verkefnisstjórum Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefna ber að styðja við og kynna inngildingarstefnu Evrópusambandsins, markmið um umhverfisstefnu og sjálfbærni og stafræna kennsluhætti.

Erasmus+ náms og þjálfunarverkefni styðja einnig við almenna stefnumörkun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði starfsmenntunar sem kemur m.a.fram í The Council Recommendation on vocational education and training, The Osnabrück Declaration , og The European Skills Agenda

Hverjir geta sótt um?

Einungis lögaðilar: starfsmenntastofnanir, skólar og fyrirtæki sem sinna starfsmenntun geta sótt um styrk fyrir Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefni. Einstaklingar geta ekki sótt um styrki úr Erasmus+.

Aðilar sem geta sótt um Erasmus+ aðild/styrk í starfsmenntahluta Erasmus áætlunarinnar geta m.a. verið eftirfarandi:

Skilyrði (1): fræðsluaðilar sem bjóða starfsnáms- og listabrautir á framhaldsskólastigi:

Nám og þjálfun sem telst styrkbært í Erasmus+

Dæmi um framkvæmdaaðila

Starfs- og listnámsbrautir á framhaldsskólastigi

Starfsmenntaskólar, aðrir framhaldsskólar sem bjóða upp á starfs- og listnámsbrautir og aðrir aðilar sem bjóða upp á staðfest starfs- og listnám á framhaldsskólastigi

Starfsmiðuð símenntun

Framhaldsskólar, háskólar og aðrar fræðslustofnanir sem bjóða staðfesta starfsmiðaða símenntun.

Skilyrði (2): menntayfirvöld, aðrir opinberir aðilar, stofnanir og hagsmunaaðilar sem hafa formlegt hlutverk á sviði starfsnáms:

Hlutverk innan menntakerfisins

Dæmi um framkvæmdaaðila

Umsjón og eftirlit fræðsluaðila starfsnáms sem og stjórnun, umsjón og gæðaeftirlit

Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar

Stefnumótun, skipulagning á starfsmenntun sem og samþykki á starfsnámsgreinum

Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar, starfsgreinaráð og hagsmunaaðilar sem sinna verkefnum sem snúa að skipulagningu starfsnáms

Náms- og starfsráðgjöf

Fræðsluaðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf í starfsmenntun

Umsjón og stuðningur við starfsnámsnema og nýútskrifaða

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem sinna skipulagi og stuðningi við starfsnámsnema og tengslum við atvinnulífið

Skilyrði (3): Fyrirtæki, stofnar og aðrir aðilar sem taka á móti nemum, hafa umsjón með og skipuleggja starfsnám á vinnustað.

Nám og þjálfun sem telst styrkbært í Erasmus+

Dæmi um framkvæmdaaðila

Starfsnám á vinnustað

Fyrirtæki, stofnar og aðrir aðilar sem taka á móti nemum, hafa umsjón með og skipuleggja starfsnám á vinnustað

Hvað er styrkt/ Styrkupphæðir?

Umsýslustyrkur

Styrkur tengdur framkvæmd verkefnisins t.d. undirbúningur, stuðningur, eftirfylgni, staðfesting dvalar og kynning niðurstaðna. Styrkurinn miðast við fjölda þátttakenda og tegund ferða.

Flokkur

Upphæð

  • starfsfólk á námskeiðum

  • móttaka á sérfræðingum erlendis frá 

  • móttaka á kennaranemum erlendis frá

  • þátttakendur í nemakeppnum

  • nemendur í hópferðum

EUR 100 fyrir hvern þátttakanda

  •  styttri dvöl nemenda
  • starfsspeglun og gestakennsla starfsfólks

EUR 350 fyrir hvern þátttakanda
 
  • löng dvöl nemenda (ErasmusPro)

  • dvöl nemenda í löndum utan þáttökulanda Erasmus+

EUR 500 fyrir hvern þátttakenda

Ferðastyrkur

Stuðningur við ferðakostnað þátttakenda og aðstoðarfólks. Miðað er við ferðir báðar leiðir.Við ákvörðun fjarlægðar þarf að nota “ distance calculator ” og miðað er við beina línu frá upphafsstað til áfangastaðar. Ferðastyrkur umhverfisvænna ferða er veittur þegar þátttakandi hefur valið vistvænni ferðamáta en flug. Green Travel á hins vegar aðeins við ef lengsti ferðaleggur í km. er grænn ferðamáti og á þess vegna sjaldan við um ferðalög frá Íslandi.

Fjarlægð

Hefðbundinn ferðastyrkur

Ferðastyrkur græns ferðamáta
(Green travel)

10-99 km

28 EUR

 56 EUR

100 – 499 km

211 EUR

285 EUR

500 – 1999 km

309 EUR

417 EUR

2000 – 2999 km

395 EUR

535 EUR

3000 – 3999 km

580 EUR

785 EUR

4000 – 7999 km

1188 EUR

 1188 EUR

8000 km eða meira

1735 EUR

 1735 EUR

Uppihaldsstyrkur
Stuðningur við uppihaldskostnað þátttakenda og fylgdarmanna þeirra meðan á dvölinni stendur.

Miðað er við dvalartíma og að hámarki 2 ferðadaga nema þegar veittur er grænn ferðastyrkur en þá geta ferðadagar verið allt að 6. Neðangreindar upphæðir miða við einn dag og gilda fyrir dag 1 – 14. Frá degi 15 og til loka dvalar er styrkupphæðin 70% þessara upphæða.

Þátttakandi

Landahópur 1

Landahópur 2

Landahópur 3

Starfsfólk

191 EUR

169 EUR

148 EUR

Nemendur

127 EUR

110 EUR

93 EUR

Landahópur 1: Austurríki, Belgía, Frakkland, Danmörk, Finnland, Holland, Ísland, Írland, Ítalía, Liechtenstein, Luxemborg, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland
Landahópur 2: Eistland, Grikkland, Kýpur, Lettland, Malta, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Tékkland
Landahópur 3: Búlgaría, Króatía, Litháen, Norður Makedónía, Pólland, Rúmenía, Serbía, Tyrkland, Ungverjaland
Landahópar v/annarra landa sjá handbók

Stuðningur vegna inngildingar (inclusion)

Sýna þarf fram á að raunveruleg þörf sé fyrir viðbótarstyrk vegna þátttöku viðkomandi.

Viðbótarstyrkur vegna undirbúnings og skipulagningar dvalar fólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+

125 EUR fyrir hvern þátttakanda

Styrkur vegna raunverulegs viðbótarkostnaðar vegna þátttöku nemenda og starfsfólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+

100% raunverulegs kostnaðar

Undirbúningsheimsóknir

Styrkur vegna ferða og uppihalds.

680 EUR fyrir hvern þátttakanda. 
 Hámarksfjöldi þátttakenda í hverri ferð eru 3.

Námskeiðsgjöld

Styrkur vegna námskeiðsgjalds

80 EUR fyrir hvern þátttakanda á dag.
 Hámarksstyrkur fyrir hvern þátttakanda eru 800 EUR

Stuðningur vegna tungumálaundirbúnings

Styrkur vegna tungumálastuðnings þátttakenda vegna tungumála sem ekki eru í boði í OLS tungumálakerfinu.

Gildir um nemendur sem fara erlendis í skemmri og lengri dvöl og starfsfólk sem fer í starfsspeglun og gestakennslu.

150 EUR fyrir hvern þátttakanda

150 EUR viðbótarstyrkur fyrir alla nemendur sem dvelja lengur en 90 daga (Erasmus Pro)

Styrkur vegna sérstaklega kostnaðarsamra ferða

Viðbótarstyrkur er veittur vegna ferða frá svæðum sem talin eru afskekkt og ferðakostnaður því mikill

Styrkurinn byggir á raunkostnaði og er að hámarki 80%.  

Hvernig er hægt að finna samstarfsaðila?

Umsækjendur finna sjálfir  sína samstarfsaðila. Mikilvægt er að vanda vel val samstarfsaðila og kynna sér þeirra reynslu og fagsvið.

  • Tengslaráðstefnur eru skipulagðar af Landskrifstofum Erasmus+. Þessar ráðstefnur eru kynntar á heimasíðum Landskrifstofa jafnóðum og upplýsingar um þær berast.

  • EPALE, vefgátt fullorðinsfræðslu í Evrópu býður upp á leit að samstarfsaðilum (partner search). Stofnanir eða félagasamtök innan fullorðinsfræðslu geta skráð sig á EPALE og komist í samband við áhugasama aðila í öðrum Evrópulöndum.

  • School Education Gateway er torg þar sem kennarar, skólafólk, sérfræðingar og raunar allir sem tengjast kennslu og skólaþróun á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi koma saman. Þar er m.a. að finna verkfæri sem koma að notum við leit að samstarfsaðilum.

Þátttökulönd

Lögaðilar í þátttökulöndunum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Lichtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu.

Þeir sem hafa staðfesta Erasmus+ aðild geta einnig sent nemendur og kennara til annarra landa um allan heim. Sú upphæð sem varið er til slíkra ferða getur ekki numið meiru en 20% af heildarfjármagni verkefnis. 

Vinnustaðanám á Íslandi

Vinnustaðanám auðveldar starfsmenntanemum í Evrópu að stíga út á vinnumarkaðinn og öðlast þekkingu, leikni og hæfni í sínu fagi sem mun nýtast í framtíðinni. Starfsmenntanemar sækja um styrk til sinna heimaskóla og geta íslenskar starfsmenntastofnanir og fyrirtæki tekið á móti þessum nemendum í vinnustaðanám sem móttökustofnun. Ávinningurinn fyrir móttökustofnunina er skýr – hún fær einstakling inn í stofnunina með ferska sýn frá nýju landi og brúar um leið bilið milli atvinnulífs og skóla. Til grundvallar Erasmus+ vinnustaðanámi liggur samningur, sem hefur verið samþykktur af þátttakanda, heimaskóla og móttökustofnun. Hér eru leiðbeiningar fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir. Sjá leiðbeiningar um Erasmus+ vinnustaðanám.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica