Vefeyðublöðin

Í Erasmus+ er notast við vefeyðublöð. Vefeyðublöðin eru birt um leið og þau eru tilbúin, að jafnaði um 4-8 vikum fyrir umsóknarfrest. 

Hægt er að nálgast vefeyðublöðin ásamt öðrum kerfum Erasmus+ og ESC inni á Erasmus+ og ESC torginu. Á Erasmus+ og ESC torginu er hægt að nálgast helstu kerfi sem tengjast umsóknum og umsýslu verkefna í Erasmus+ og ESC s.s. vefeyðublöðin, OID skráningarkerfið (organisation registration) og fleira. Vefeyðublöðin í Erasmus+ og ESC má nálgast undir „Opportunities“ vinstra megin á síðunni. Gakktu úr skugga um að þú sért að velja rétt eyðublað.

Til að komast inn í þessi kerfi þarf EU login aðgang og til að geta sótt um þarf umsóknaraðilinn (stofnunin/fyrirtækið/samtökin) að vera með OID númer.

Umsóknarferlið er algjörlega rafrænt, sem þýðir að þú fyllir út og skilar umsókninni á netinu. Ekki þarf að skila inn prentuðu afriti af umsókninni. 

Umsóknareyðublaðið

  1. Þegar opið er fyrir umsóknir er hægt að nálgast eyðublöðin á Erasmus+ og ESC torginu undir Opportunities. Passaðu vel að velja rétt eyðublað.
  2. Ef umsókninni er lokað (farið út af síðunni) er hægt að nálgast hana aftur með því að fara í „My Applications“ á Erasmus+ og ESC torginu
  3. Hægt er að nálgast stuttar tæknilegar leiðbeiningar um eyðublöðin í "? Guidelines" hnappinum efst í hægra horni eyðublaðsins. 
  4. Skyldureitir í umsókninni eru merktir með rauðri stjörnu og til að hægt sé að senda inn umsóknina þarf að vera búið að fylla inn í alla slíka reiti.
  5. Hægt er að sjá yfirlit yfir kafla í umsókninni vinstra megin í eyðublaðinu. Þegar fyllt hefur verið út í alla skyldureiti og allar reglur virtar í viðkomandi kafla er hann merktur með grænu haki. Sé kaflinn merktur með rauðu viðvörunarmerki hefur ekki verið fyllt út í alla reiti eða ekki farið eftir reglum.
  6. Eyðublaðið er vistað sjálfkrafa.
  7. Sé þörf á að gera leiðréttingar eða breytingar á umsókn eftir að hún hefur verið send inn er hægt að opna hana aftur og senda inn þar til umsóknafrestur rennur út.
  8. Hægt er að nálgast PDF útgáfu af umsókninni með því að smella á PDF hnapp efst í hægra horni umsóknareyðublaðsins.
  9.  Hægt er að veita öðrum aðgang að umsókninni í „Sharing“ kafla umsóknarinnar. Hægt er að velja hvort viðkomandi hefur lesaðgang, les- og skrifaðgang eða les-, skrif og skilaaðgang.
  10. Settu í viðhengi þau skjöl sem skila þarf með umsókninni. Það er skylda að láta undirskrift löggilts aðila innan stofnunarinnar fylgja með. Hámarksfjöldi fylgiskjala fer eftir hvers konar umsókn er um að ræða.
  11. Sendu umsóknina þína inn með því að ýta á „submit" hnappinn fyrir lok umsóknarfrests. Þegar þú hefur sent umsóknina inn birtast skilaboð um það hvort skilin hafi gengið í gegn eða ekki. Í „Submission history“ kafla umsóknarinnar má finna skilasögu umsóknarinnar.

Gott að hafa í huga varðandi umsóknir

  • Sendu umsóknina inn tímanlega, vefumsóknakerfið lokar á skil þegar umsóknafrestur rennur út.

  • Til þess að reikna fjarlægðir og ferðakostnað fyrir fjárhagshluta umsóknarinnar, skal taka mið að niðurstöðum reiknivélar fyrir vegalengdir.

  • Það er skylda að setja þau skjöl sem beðið er um í umsóknarforminu í viðhengi við umsóknina.

  • Ef þú átt í tæknilegum vandræðum með að skila umsókninni hafðu þá samband við landskrifstofu sem fyrst í síma eða á erasmusplus(hja)rannis.is. Fáir þú upp villuboð taktu þá skjámynd af þeim og sendu okkur í tölvupósti ásamt umsóknarnúmerinu. Einnig getur verið gott að taka út PDF afrit af umsókninni. Uppfylla þarf ákveðin skilyrði til að landskrifstofa geti heimilað skil á umsókn eftir umsóknarfrest:
    •  Sýna þarf fram á að reynt hafi verið að skila umsókninni fyrir skilafrest, þessar upplýsingar er hægt að nálgast í Submission history kafla umsóknarinnar
    •  Hafa þarf samband við landskrifstofu innan sólarhrings frá umsóknarfresti
    •  Senda landskrifstofu pdf afrit af umsókninni án þess að breytingar hafi verið gerðar eftir síðustu tilraun til skila. Afritið af umsókninni þarf að berast innan sólarhrings frá umsóknarfresti.
    Landskrifstofa metur hvort ástæður tafanna séu þess eðlis að hægt sé að taka umsókn gilda.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica