Notkun gervigreindar í Erasmus+ og European Solidarity Corps
Gervigreind getur verið gagnlegt hjálpartæki við gerð umsókna og skýrslna í Erasmus+ og European Solidarity Corps. Mikilvægt er þó að nota gervigreind á ábyrgan hátt og hafa í huga að umsækjendur og styrkhafar bera alltaf fulla ábyrgð á því efni sem skilað er inn.
Hvað má gera með gervigreind?
Gervigreind má nota sem hjálpartæki, til dæmis til:
- að hjálpa til við uppkast að texta
- að skipuleggja eða endurbæta texta
- að leiðrétta málfar
Mikilvægt: Efnið verður alltaf að endurspegla raunverulegt verkefni og þarf að vera yfirfarið, staðfest og upphaflega unnið eða aðlagað af umsækjanda. Umsækjendur og styrkhafar bera alltaf ábyrgð á nákvæmni, gæðum og upprunaleika efnis.
Hvað þarf að hafa í huga?
- Gervigreind getur gefið rangar, misvísandi eða ónákvæmar upplýsingar og þarf því alltaf að lesa yfir og sannreyna efnið.
- Umsækjendur og styrkhafar þurfa að tryggja að efnið sem skilað er inn sé upprunalegt. Gervigreind skal einungis notuð til stuðnings eigin vinnu og allt efni sem hún býr til aðlagað eftir því sem við á svo það brjóti ekki gegn höfundarrétti.
- Texti sem er of almennur, ósértækur eða ekki í samræmi við starfsemi viðkomandi getur haft áhrif á það hvernig gildi gagna og gæði þeirra eru metin.
- Umsækjendur og styrkhafar bera ábyrgð á að fylgja reglum um persónuvernd og örugga meðferð gagna.
- Notkun gervigreindar hefur einnig umhverfisáhrif. Umsækjendur og styrkhafar eru hvattir til að velja tæki af ábyrgð og meta hvort og hvernig notkunin sé raunverulega nauðsynleg. Hafa ber í huga að umhverfisáhrifin eru mismikil eftir tegund notkunar, til dæmis hvort verið er að vinna með texta eða myndir.
Hafðu samband við Landskrifstofuna ef þú þarft ráðgjöf við umsóknarferlið.