Nám og þjálfun í fullorðinsfræðslu

nemendur og starfsfólk

Fyrir hverja?

Lögaðilar og stofnanir sem starfa á sviði fullorðinsfræðslu geta sótt um náms- og þjálfunarstyrki fyrir nemendur sína og starfsfólk.

Til hvers?

  • Lögaðilar og stofnanir í fullorðinsfræðslu geta sótt um ferða-, uppihalds- og námsstyrki fyrir nemendur og starfsfólk til að taka þátt í mismunandi verkefnum sem standa frá tveimur dögum upp í 12 mánuði í einu af þátttökulöndum Erasmus+.
  • Starfsfólk getur sinnt kennslu eða þjálfun hjá samstarfsstofnun erlendis eða stundað starfsþjálfun, s.s. með þátttöku í fagtengdum námskeiðum eða vinnustofum, starfsspeglun (job shadowing) eða skipulögðum heimsóknum til fullorðinsfræðsluaðila erlendis.
  • Nemendur geta sótt nám og þjálfun hjá samstarfsstofnun í skemmri eða lengri tíma, frá 2-30 dögum eða 30-365 dögum. Leggja skal áherslu á inngildingu við val nemenda. Kennari sendistofnunar skal fylgja nemendum allan tímann í styttri ferðum en fjöldi nemenda í slíkum ferðum eru a.m.k. tveir.
  • Stofnanir geta einnig sótt um styrk til að taka á móti erlendu starfsfólki. 

Umsóknarflokkar náms- og þjálfunarverkefna

Umsóknarflokkar náms- og þjálfunarverkefna eru tveir, þ.e. Erasmus+ aðild og Erasmus+ skammtímaverkefni.

Erasmus+ aðild (accredited projects for mobiltiy of learners and staff in adult education and training)

Stofnanir sem eru með Erasmus aðild geta sótt um námsferðir og starfsþjálfun fyrir nemendur og starfsfólk. Umsóknir eru byggðar á áður samþykktri Erasmus áætlun þannig að ekki er krafist nákvæmrar framkvæmdaáætlunar, heldur er áhersla lögð á umfang alþjóðastarfs á tímabili verkefnisins. Úthlutun til einstakra stofnana/samtaka byggir á eftirfarandi atriðum:

  • Heildarupphæð úthlutaðs fjármagns til náms- og þjálfunarverkefna í fullorðinsfræðslu

  • Umsókn og áætlun hverrar stofnunar/samtaka

  • Grunnstyrk og hámarksstyrk hverrar stofnunar/samtaka

  • Árangri hverrar stofnunar/samtaka varðandi nýtingu fjármagns, framkvæmd verkefna og stuðningi við áhersluatriði Erasmus+ áætlunarinnar um inngildingu, umhverfismál og stafræna kennsluhætti.

Gildistími verkefna: 15 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+ og önnur lönd
Stofnanir sem hafa staðfesta Erasmus+ aðild geta einnig sótt um samstarfsnet og verkefni fleiri skóla/stofnana/ fyrirtækja.

Erasmus+ skammtímaverkefni (short term mobility projects)

Þeir sem ekki hafa Erasmus+ aðild geta sótt um námsferðir og starfsþjálfun sinna nemenda og starfsfólks.

Skammtímaverkefni eru góður kostur fyrir stofnanir sem eru að sækja um í fyrsta sinn og ekki stefna að reglulegri þátttöku í áætluninni heldur vilja sækja um af og til. Aðeins er hægt að sækja um stök verkefni þrisvar sinnum á fimm ára tímabili.
Gildistími verkefna: 6 – 18 mánuðir
Möguleg dvalarlönd: Þátttökulönd Erasmus+

Aðrar leiðir til þátttöku í Erasmus+ náms- og þjálfunarverkefnum

  • Samstarfsnet (consortia): Það getur verið góður kostur að taka þátt í samstarfsneti með öðrum aðilum á sviði fullorðinsfræðslu.
  • Móttökuaðili: Að taka á móti þátttakendum frá samstarfsaðilum í öðrum löndum er lærdómsríkt og getur lagt grunninn að frekara samstarfi og umsókn síðar.

Tækifæri Erasmus+ í fullorðinsfræðslu fyrir nemendur og starfsfólk

Nemendur:
Erasmus+ veitir nemendum tækifæri til að fara í náms- og þjálfunarferðir hjá samstarfsaðilum sendistofnunar. Dvölin verður að eiga sér stað í einu af þátttökulöndum Erasmus+ og skulu nemendur vera skráðir í nám hjá fullorðinsfræðslustofnun sem sendir þau utan. Nemendaferðir skiptast annars vegar í skemmri hóp- eða einstaklingsferðir þar sem kennarar þurfa að fylgja hópnum allan tímann og hins vegar í lengri einstaklingsferðir. Við val á þátttakendum skal leggja áherslu á inngildingu og ávalt velja fjölbreyttan hóp nemenda til að senda utan. 

Rík áhersla er lögð á gæði þjálfunar nemenda og ber að fylgja viðmiðum gæðaviðmiða Erasmus+ (Quality Standards). Í því sambandi ber að framfylgja ákveðnu ferli við undirbúning og framkvæmd ferða. Gerður er samningur við þátttakendur og samkomulag við móttökuaðilann um þjálfun. Að dvöl lokinni skal móttökuaðilinn staðfesta dvöl og lærdóm.

Tækifæri nemenda sem eru í námi hjá fullorðinsfræðslustofnun eru eftirfarandi:

  • Nám og þjálfun fyrir nemendahópa (Group mobility of adult learners)
    Dvalarlengd 2 – 30 dagar; lágmarksfjöldi nemenda í hverjum hópi: 2

  • Skemmri dvöl – Nám/þjálfun hjá samstarfsstofnun 
    (Short-term learning mobility of adult learners)
    Dvalarlengd 2 – 29 dagar

  • Lengri dvöl – Nám/þjálfun hjá samstarfsstofnun 
    (Long-term learning mobility of adult learners)
    Dvalarlengd: 30 dagar – 12 mánuðir

Tækifæri starfsfólks í fullorðinsfræðslu eru eftirfarandi:

  • Starfsspeglun (Job shadowing)
    Dvalarlengd: 2 – 60 dagar

  • Fagtengd námskeið og þjálfun (Courses and training)
    Dvalarlengd: 2 – 30 dagar (ath. að styrkur námskeiðsgjalds er takmarkaður við 10 daga)

  • Gestakennsla í stofnunum í öðru landi (Teaching or training assigments)
    Dvalarlengd: 2 dagar – 12 mánuðir

  • Móttaka sérfræðinga frá stofnunum annarra landa (Invited Experts)
    Dvalarlengd: 2 – 60 dagar

  • Móttaka kennara- og leiðbeinendanema frá stofnunum annarra landa
    (Hosting teachers and educators in training)
    Dvalarlengd: 10 dagar – 12 mánuðir

  • Undirbúningsheimsóknir sem farnar eru til að skipuleggja ákveðnar ferðir nemenda og starfsfólks með það að markmiði að auka gæði t.d. lengri dvalar, ferðir þátttakenda með minni möguleika á þátttöku o.fl. Hámarksfjöldi þátttakenda hverrar ferðar eru þrír.

Til þess að tryggja jöfn réttindi er mögulegt að sækja um sérstaka styrki fyrir þátttakendur sem hafa minni möguleika til þátttöku. Um er að ræða styrki fyrir fylgdarmenn og vegna nauðsynlegs viðbótarkostnaðar. Þeir sem hafa Erasmus+ aðild geta sótt um viðbótarstyrk vegna þeirra sem hafa minni möguleika á þátttöku á verkefnistímanum.

Hvert er markmiðið?

Markmið náms- og þjálfunarverkefna á sviði fullorðinsfræðslu er að styðja við þátttöku íslenskra fullorðinsfræðsluaðila í alþjóðlegu samstarfi sem hafa það hlutverk að auka færni og hæfni fullorðinna til atvinnuþátttöku. 

Hverjir geta sótt um?

Einungis fullorðinsfræðslustofnanir og aðilar sem sinna skipulagningu fullorðinsfræðslu geta sótt um styrki.

Aðilar sem geta sótt um aðild/styrk í fullorðinsfræðslu Erasmus+ áætlunarinnar geta m.a. verið:

Skilyrði (1): fræðsluaðilar sem bjóða nám á sviði fullorðinsfræðslu.

Nám sem telst styrkbært í Erasmus Dæmi um framkvæmdaraðila
Námskeiðahald í fullorðins- og framhaldsfræðslu Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og aðrir fræðsluaðilar
Náms- og starfsráðgjöf í fullorðins- og framhaldsfræðslu Viðurkenndir fræðsluaðilar: Fræðsluaðilar sem hlotið hafa formlega viðurkenningu ráðuneytisins og annast raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og námskeiðahald í framhaldsfræðslu
Raunfærnimat Viðurkenndir fræðsluaðilar: Fræðsluaðilar sem hlotið hafa formlega viðurkenningu ráðuneytisins og annast raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og námskeiðahald í framhaldsfræðslu
Formleg grunn- og framhaldsfræðsla fyrir fullorðna byggð á vottuðum námskrám Símenntunarmiðstöðvar og aðrir viðurkenndir fræðsluaðilar
Formleg framhaldsfræðsla fyrir fullorðna innflytjendur Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar
Óformlegt nám í fullorðinsfræðslu skipulagt og framkvæmt af hæfum leiðbeinendum Félags- eða þjónustumiðstöðvar, ýmis félagasamtök, bókasöfn, háskólar fyrir fólk á þriðja aldursskeiði, lýðskólar, opnir háskólar, einkaaðilar, stéttarfélög og aðrar stofnanir sem bjóða upp á sérnámsnámskeið (t.d. í tungumálum, stafrænni færni eða annarri lykilhæfni)
Óformleg fræðsla og þjálfun fyrir einstaklinga með minni möguleika í samfélaginu (s.s. fólk með fötlun, farandverkamenn, aldraðir eða fátækir) Menningarmiðstöðvar, bókasöfn, söfn, leikhús, tónlistar- og listasamtök, foreldrafélög, félagasamtök, mannúðarsamtök, fagfélög
Áætlanir um félagslega aðlögun eða lífsleikni einstaklinga sem afplána eða hafa afplánað refsidóma eða verið dæmdir fyrir afbrot Fangelsi og aðrar betrunarstofnanir, veitendur félagsþjónustu, félagasamtök, mannúðarsamtök

Skilyrði (2): Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar, stofnanir og hagsmunaaðilar sem hafa formlegt hlutverk á sviði fullorðinsfræðslu

Hlutverk innan menntakerfis Dæmi um framkvæmdaraðila
Að stofna og hafa umsjón með fullorðinsfræðslustofnunum Sveitarfélög, ríkisstofnanir og aðrir opinberir aðilar
Þjálfun, ráðning og stjórnun starfsfólks í fullorðinsfræðslu Menntayfirvöld, háskólar, fræðsluaðilar á vegum aðila vinnumarkaðar
Að skilgreina og innleiða námsáætlun fullorðinna á öllum stigum Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar
Stjórnun og gæðaeftirlit með framkvæmd fullorðinsfræðslu Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar
Skilgreina hæfniramma, staðla og tækifæri fyrir samfellda fagmenntun sem veitir fullorðinsfræðslu Menntayfirvöld og aðrir opinberir aðilar í samráði við hagsmunaaðila
Veita kennurum og leiðbeinendum í fullorðinsfræðslu faglegan stuðning og handleiðslu Háskólar, símenntunarstöðvar og fagfélög kennara og leiðbeinenda
Veita náms- og starfsráðgjöf, fagráðgjöf og sálfræðilegan stuðning fyrir fullorðna nemendur Náms- og starfsráðgjafar, verkalýðsfélög, símenntunar-, þjónustu- og félagsmiðstöðvar, mannúðarsamtök, félagasamtök, samtök sem veita sálfræðistuðning fyrir fullorðna

Hvað er styrkt/ Styrkupphæðir?

Umsýslustyrkur

Kostnaður tengdur framkvæmd verkefnisins t.d. undirbúningur, stuðningur, eftirfylgni, staðfesting dvalar og kynning niðurstaðna. Styrkurinn miðast við fjölda þátttakenda og tegund ferða.

Flokkur Upphæð
  • nemendur sem fara út í hópum 

  • starfsfólk sem fer út á námskeið

  • ·móttaka sérfræðinga erlendis frá
  • ·móttaka kennara og kennaranema erlendis frá
EUR 125 fyrir hvern þátttakanda

EUR 100 fyrir hvern þátttakanda
  • stutt dvöl nemenda erlendis

  • starfsspeglun erlendis

  •  gestakennsla starfsfólks erlendis

EUR 350 fyrir hvern þátttakanda
  • löng dvöl nemenda erlendis
 EUR 500 fyrir hvern þátttakanda

Ferðastyrkur

Stuðningur við ferðakostnað þátttakenda og fylgdarmanna. Miðað er við ferðir báðar leiðir. Við ákvörðun fjarlægðar þarf að nota “distance calculator” og miða við beina línu frá upphafsstað til áfangastaðar. Ferðastyrkur umhverfisvænna ferða er veittur þegar þátttakandi hefur valið vistvænni ferðamáta en flug. Green Travel á hins vegar aðeins við ef lengsti ferðaleggur í km. er grænn ferðamáti og á þess vegna sjaldan við um ferðalög frá Íslandi.

Fjarlægð Hefðbundinn ferðastyrkur Ferðastyrkur umhverfisvænna ferða
(Green travel)
10-99 km 28 EUR  
100 – 499 km 211 EUR 285 EUR
500 – 1999 km 309 EUR 417 EUR
2000 – 2999 km 395 EUR 535 EUR
3000 – 3999 km 580 EUR 785 EUR
4000 – 7999 km 1188 EUR  1188 EUR
8000 km eða meira 1735 EUR  1735 EUR

Uppihaldsstyrkur
Stuðningur við uppihaldskostnað þátttakenda og fylgdarmanna þeirra meðan á dvölinni stendur.

Miðað er við dvalartíma og að hámarki 2 ferðadaga, nema þegar veittur er umhverfisvænn ferðastyrkur en þá geta ferðadagar verið allt að 6. Neðangreindar upphæðir miða við einn dag og gilda fyrir dag 1 – 14. Frá degi 15 og til loka dvalar er styrkupphæðin 70% þessara upphæða.

Þátttakandi Landahópur 1 Landahópur 2 Landahópur 3
Starfsfólk 191 EUR 169 EUR 148 EUR
Nemendur 127 EUR 110 EUR 93 EUR

Landahópur 1: Austurríki, Belgía, Frakkland, Danmörk, Finnland, Holland, Ísland, Írland, Ítalía, Liechtenstein, Luxemborg, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland
Landahópur 2: Eistland, Grikkland, Kýpur, Lettland, Malta, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Tékkland
Landahópur 3: Búlgaría, Króatía, Litháen, Norður Makedónía, Pólland, Rúmenía, Serbía, Tyrkland, Ungverjaland
Landahópar v/annarra landa sjá handbók

Stuðningur vegna inngildingar (inclusion)

Sýna þarf fram á að raunveruleg þörf sé á viðbótarstyrk vegna þátttöku viðkomandi.

Viðbótarstyrkur vegna undirbúnings og skipulagningar dvalar fólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+ 125 EUR fyrir hvern þátttakanda
Styrkur vegna raunverulegs viðbótarkostnaðar vegna þátttöku nemenda og starfsfólks með minni möguleika til þátttöku í Erasmus+ 100% raunverulegs kostnaðar

Undirbúningsheimsóknir

Styrkur vegna ferða og uppihalds 680 EUR fyrir hvern þátttakanda. Hámarksfjöldi þátttakenda í hverri ferð eru þrír.

Námskeiðsgjöld

Styrkur vegna námskeiðsgjalds 80 EUR fyrir hvern þátttakanda á dag. Hámarksstyrkur fyrir hvern þátttakanda eru 800 EUR

Stuðningur vegna tungumálaundirbúnings

Styrkur vegna tungumálastuðnings þátttakenda vegna tungumála sem ekki eru í boði í OLS tungumálakerfinu.

Gildir um nemendur sem fara erlendis í skemmri og lengri dvöl og starfsfólk sem fer í starfsspeglun og gestakennslu.

150 EUR fyrir hvern þátttakanda
150 EUR viðbótarstyrkur fyrir nemendur sem fara í lengri námsddvöl

Styrkur vegna sérstaklega kostnaðarsamra ferða

Viðbótarstyrkur er veittur vegna ferða frá svæðum sem talin eru afskekkt og ferðakostnaður því mikill Styrkurinn byggir á raunkostnaði og er að hámarki 80%.  

Hvernig er hægt að finna samstarfsaðila?

Umsækjendur verða sjálfir að finna sína samstarfsaðila og eru upplýsingar um þá hluti af umsókn. Mikilvægt er að vanda vel val samstarfsaðila og kynna sér þeirra reynslu og fagsvið.

Hægt er að leita á vefsvæði EPALE að samstarfsaðilum

Þátttökulönd

Lögaðilar í þátttökulöndunum Erasmus+ áætlunarinnar geta tekið þátt. Þetta eru Evrópusambandslöndin, EFTA löndin Ísland, Liechtenstein og Noregur auk Tyrklands, Serbíu og Norður-Makedóníu. Einnig er mögulegt er að vinna með aðilum í löndum utan Evrópu, þ.m.t. Bretland. Þeir geta ekki leitt verkefni en geta verið fullgildir samstarfsaðilar.

Nánari upplýsingar








Þetta vefsvæði byggir á Eplica