Umsóknarfrestir Erasmus+ og ESC árið 2026

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ og European Solidarity Corps áætlununum fyrir árið 2026.

Nám og þjálfun

Menntun: 19. febrúar kl. 11
Æskulýðsstarf: 12. febrúar kl. 11 og 
1. október kl. 10
Íþróttir: 12. febrúar kl. 11
Inngildingarátak DiscoverEU: 12. febrúar kl. 11

Samstarfsverkefni

Smærri og stærri samstarfsverkefni: 5. mars kl. 11
Samstarfsverkefni um skólaþróun: 9. apríl kl. 10

 

European Solidarity Corps:

Sjálfboðaliðaverkefni: 18. febrúar kl. 11
Samfélagsverkefni: 18. febrúar kl. 11, 7. maí kl. 10 og 1. október kl. 10

Umsóknarfrestur um gæðavottun fyrir sjálfboðaliðaverkefni er opinn allt árið um kring. 

Erasmus+ aðild

Aðildin snýr eingöngu að náms- og þjálfunarverkefnum og er leið til að einfalda umsýslu og alþjóðastarf þátttakenda. Umsóknarfrestur er til 29. september kl. 10.

Upplýsingar fyrir umsækjendur

Þau sem hafa hugsað sér að sækja um eru hvött til að skoða heimasíðu Erasmus+ – en þar eru upplýsingar um skilyrði umsókna, hvernig umsókn er metin og upphæðir styrkja.

Á heimasíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins má finna handbækur fyrir Erasmus+ og European Solidarity Corps. Einnig er velkomið að setja sig í samband við starfsfólk Landskrifstofunnar á Íslandi til að fá nánari upplýsingar um þau skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla til að geta sótt um styrki í Erasmus+ og European Solidarity Corps.

Upplýsingarnar á þessari síðu eru birtar með fyrirvara um villur og breytingar. Allar tímasetningar miðast við íslenskan tíma.

Auglýsing um umsóknir  í Erasmus+ fyrir árið 2026 í heild sinni.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica