Notkun gervigreindar í Erasmus+ og European Solidarity Corps
Gervigreind getur verið gagnlegt hjálpartæki við gerð umsókna og skýrslna í
Erasmus+ og European Solidarity Corps. Mikilvægt er þó að nota gervigreind á ábyrgan
hátt og hafa í huga að umsækjendur og styrkhafar bera alltaf fulla
ábyrgð á því efni sem skilað er inn.
Hvað má gera með gervigreind?
Gervigreind má nota sem hjálpartæki, til dæmis til:
- að hjálpa til
við uppkast að texta
- að
skipuleggja eða endurbæta texta
- að leiðrétta
málfar
Mikilvægt: Efnið verður
alltaf að endurspegla raunverulegt verkefni og þarf að vera yfirfarið, staðfest
og upphaflega unnið eða aðlagað af umsækjanda.
Umsækjendur og styrkhafar
bera alltaf ábyrgð á nákvæmni, gæðum og upprunaleika efnis. Hvað þarf að hafa í huga?
- Gervigreind getur gefið rangar, misvísandi
eða ónákvæmar upplýsingar og þarf því alltaf að lesa yfir og sannreyna
efnið.
- Umsækjendur og styrkhafar þurfa að tryggja að
efnið sem skilað er inn sé upprunalegt. Gervigreind skal einungis
notuð til stuðnings eigin vinnu og allt efni sem hún býr til aðlagað eftir því sem við á svo það brjóti ekki gegn höfundarrétti.
- Texti sem er of almennur, ósértækur eða ekki
í samræmi við starfsemi viðkomandi getur haft áhrif á það hvernig gildi
gagna og gæði þeirra eru metin.
- Umsækjendur og styrkhafar bera ábyrgð á að
fylgja reglum um persónuvernd og örugga meðferð gagna.
- Notkun gervigreindar hefur einnig umhverfisáhrif.
Umsækjendur og styrkhafar eru hvattir til að velja tæki af ábyrgð og meta
hvort og hvernig notkunin sé raunverulega nauðsynleg. Hafa ber í huga að
umhverfisáhrifin eru mismikil eftir tegund notkunar, til dæmis hvort verið
er að vinna með texta eða myndir.
Hafðu samband við Landskrifstofuna ef þú þarft ráðgjöf við umsóknarferlið.