Ungt fólk og Evrópa - innsýn í líf Íslendinga í Brussel

6.5.2022

Vissir þú að ungt fólk hefur ýmis tækifæri til að fá starfsreynslu hjá evrópskum og alþjóðlegum stofnunum? Í tilefni af Evrópudeginum 9. maí og Evrópuári unga fólksins langar okkur á Landskrifstofu Erasmus+ og European Solidarity Corps að kynnast betur ungum Íslendingum sem starfa á fjölbreyttum vettvangi í Brussel í Belgíu.


Dagana 9.-12. maí munu birtast myndir og myndskeið á Instagram-reikningi Eurodesk á Íslandi sem veita okkur innsýn inn í líf og störf fjögurra einstaklinga. Þau vinna hjá Framkvæmdastjórn ESB, Uppbyggingarsjóði EES, Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA skrifstofunni og eiga þannig sameiginlegt að geta mótað evrópskt samstarf og hafa bein áhrif á Evrópuvettvangi. Það er einmitt vegna  bókunar 31 við EES-samninginn, sem Ísland getur tekið þátt í áætlunum Erasmus+ og European Solidarity Corps.


Í þessari Instagram-yfirtöku fáum við að sjá og heyra af daglegu lífi í Brussel, svo sem hvernig það er að vera ung manneskja í þessari höfuðborg evrópskrar samvinnu, hvers vegna þau ákváðu að flytja út og hvernig Evrópudeginum er fagnað.

Ekki gleyma að fylgja Eurodesk á Instagram (@eurodeskIceland) og færslum á samfélagsmiðlum sem hafa myllumerkið #EYY2022. 

Alexandra-Kjaernested-Arnarsdottir-logfraedingur-i-innri-markadsdeild-Eftirlitsstofnunar-EFTA-ESA-1-









Þetta vefsvæði byggir á Eplica