Tengslaráðstefna með áherslu á Nýsköpunarsamstarf (Alliances for Innovation) og Öndvegissetur Starfsmenntunar (CoVE)

Umsóknarfrestur liðinn

02g70171 

Heiti viðburðar: Transnational contact seminar with a cross-sectoral focus on Alliances for Innovation and Centres of Vocational Excellence

Fyrir: Háskólastarfsfólk og starfsfólk í starfsmenntaskólum sem hafa tekið þátt í Erasmus+ verkefnum og hafa áhuga á Öndvegissetri starfsmenntunar (Centres of Vocational Excellence - CoVE) og Nýsköpunarsamstarfi (Alliances for Innovation)

Tungumál: Enska

Hvar: Bergen, Noregi

Hvenær: 23.-25. október 2023

Umsóknarfrestur: Til og með 8. september 2023

Sótt er um á heimasíðu Salto

Markmið tengslaráðstefnunnar er að hvetja samtök á Norðurlöndunum til þátttöku í miðstýrðu verkefnunum Öndvegissetri starfsmenntunar og Nýsköpunarsamstarfi, sem og að auka áhrifamátt Erasmus+ áætlunarinnar. Þátttaka í tengslaráðstefnunni er einnig kjörið tækifæri til að efla tengslanet sitt.

Fjöldi þátttakenda frá Íslandi: 10

Landskrifstofa Erasmus+ greiðir fyrir þátttöku og gistinætur á meðan ráðstefnunni stendur. Landsskrifstofan veitir að auki 90% styrk vegna ferðakostnaðar, en í því felast allar ferðir til og frá flugvöllum, sem og auka gistinætur sem þátttakendur þurfa hugsanlega að taka vegna fjarlægðar sinnar frá fundarstað, bæði innanlands og utan.

Fyrirspurnum svarar Svandís Ósk Símonardóttir: svandis.o.simonardottir@rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica